Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: all the people that hate me

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Mjög flott hjá þér cecilie… :) Ég er sammála Talena… þetta er í raun líf mitt að hluta til í hnotskurn… ég geng sjálfur í svörtum fötum en það er í raun sjaldnast hæðst að mér mikið… það er bara annað… Flott ljóð og keep up the good work ;) kv. pardus

Re: Með kveðju til allra hérna á jörð... bless

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég er sammála Talena. Ég hef líka hugsað mér að fara til sálfræðings fljótlega til að losa mig við sjúkdóminn. Ég geri mér núna grein fyrir því að þetta er ekkert annað en kvilli. En mér þykir sjálfsmorð eigingjarnt vegna þess að aðstandendur manns þess sem gerir það munu ekki vera samir á eftir. En munið það að ég sjálfur á við þetta að stríða og ég hef OFT hugsað um að gera þetta. Þess vegna skil ég þá sem gera þetta en ég hef líka samúð með ættingjum og vina þeirra sem enda líf sitt. Með...

Re: Religion kills

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Vá!!!???… Vá!!!???… Vá!!!???… Uhhhhh… ég er grófur í mörgum af mínum ljóðum en guð hvað þetta var mikið. Guð er ekki helgur í mínum augum en það er nú full mikið að líkja honum við nauðgara (þú átt eftir að fá mikinn hatursmeil innan tíðar frá sanntrúuðum einstaklingum)… Mér fannst þetta frábært ljóð (hneikslandi texti er ALLTAF flottur) en það mætti laga stafsetningarvillurnar betur (eins og Deeq sagði). Annars… snilld ;) Kv. pardus

Re: Með kveðju til allra hérna á jörð... bless

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég held að mín allra persónulegustu málefni séu ekki rædd hérna… ég ætla ekki að skella skuldinni á neinn eða neitt hérna á netinu. Aftur á móti hefur mér liðið bölvanlega undanfarið en ég veit að það mun ábyggilega batna… það sama gildir um ykkur hin ef þið eruð bjartsýn. Ég hef mínar ástæður en ef þig langar að vita það Ernath þá er ég alveg til í að segja það í pósti… þ.e.a.s ef ég þekki þig EKKI persónulega. Ég vil helst ekki að fólk úr bekknum mínum eða fólk sem þekkir mig og mína náið...

Re: Með kveðju til allra hérna á jörð... bless

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég hef sömu tölu og þú Talena… 3svar sinnum. Ég vona bara að gamla máltækið gildi í tilvikum okkar beggja “að allt er þá þrennt er”. Það er líka mjög gott að heyra að einhver gengur í gegnum það sama (auðvitað óska ég engum þess - og myndi vilja að það væri enginn annar en ég og helst ekki einu sinni ég). Þunglyndi er helvíti og einelti er andleg nauðgun. Ég vona að allir þeir sem hafa lesið bæði ljóðið og svörin við því muni batna af þunglyndi sínu ef þau eiga við eitthvað slíkt að stríða....

Re: Með kveðju til allra hérna á jörð... bless

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Mér finnst viðbrögðin við þessu hafa verið mjög góð þó þau hafi í raun kannski ekki verið jákvæð. Málið er bara það að margir eru hræddir við það að viðurkenna að þeir eru lagðir í einelti. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en pabbi minn sagði mér það hreinlega, honum fannst hegðun margra í minn garð vera hreinlega fáranleg. Þess vegna finnst mér að fólk ætti bara að horfast í augu við þetta og berjast til baka. Ég veit að þessi orð eru klisja en það virkar vonandi oftast… málið er bara það að...

Re: What have I done?

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Nokkuð nett ljóð þett-a Skrifa meira Fjalla um fleira… Nei… djók… þetta ljóð er mjög flott hjá þér WestCost ;) kv. pardus

Re: Hryðjuverk í USA!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég yrði ekki hissa þó að Bandaríkjamenn myndu hefna þessarar árásar með einhverju fáranlega bragði… til dæmis með kjarnorkusprengju á Palestínu. Kannski ekki kjarnorku… en þegar Japanir gerðu innrás í Pearl Harbour… þið vitið öll hvað gerðist eftir það!!!! The world is going down as we watch it happen… WW3

Re: Með kveðju til allra hérna á jörð... bless

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Þetta ljóð var ekki ort í þeim tilgangi að særa fólk… enda vil ég það ekki. Málið er bara það að það eru fleiri en ég sem hugsa svona og í raun eru það allt of margir í heiminum… Ég vona bara að þetta ljóð hafi vakið einhverja til umhugsunar um einelti, stríðni, svik og alla slæma hegðun gagnvart öðru fólki. Þetta er fyrst og fremst áróðursljóð en því miður er ég umfjöllunarefnið í þessu tilviki. Kveðja… Pardus P.S. Gangi þér vel Cecilie ;) Það er hellingur af fólki sem getur hjálpað þér…

Re: jáh!!

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
úúúúúúúúúúúúúúúúúúúú….!!! Maður hefur svo sem séð samönd myndast á netinu en ekki svona greinilega… tíhíhíhíhíhíhíhíhíhí ;)

Re: Með kveðju til allra hérna á jörð... bless

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég þakka þér rosalega fyrir umhyggju þína ljúfa (og ykkur öllum)… og ég veit að hún er sönn. En auðvitað get ég ekki (af skiljanlegum) ástæðum sett inn hverja einustu ástæðu fyrir þunglyndi mínu… einhvers staðar setur maður mörkin á því hvað maður lætur á netið. Þess vegna vitið þið ekki hvað bjátar á hjá mér og þið getið ekki dæmt mína líðan… ég er þakklátur fyrir umhyggju ykkar en það eru bara ástæður fyrir því að ég reyni og reyni en þetta tekst ekki… :( Cheer up all of you… kv. pardus

Re: Með kveðju til allra hérna á jörð... bless

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
En hvað ef maður reynir og reynir að eilífu án árangurs. Mér hefur oft tekist að finna svokallaða hamingju en það er hrikalega slæmt að falla niður aftur… því hærra sem þú ferðast, því lengra verður fallið niður aftur… Mér finnst það vissulega eigingirni að taka sitt eigið líf en stundum er sú hugsun líka það eina sem hindrar mig… út af því að ég er svo “næs” gæi… Mig langar ósköp lítið til að tala um þetta lengur… ég setti þetta inn í einhverju brjálæðiskasti/þunglyndiskasti og í raun var...

Re: Með kveðju til allra hérna á jörð... bless

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Já… lífið er eins og langt grindahlaup. Ég er búinn að hlaupa dáldið lengi og ég er við það að springa. Ég er þar að auki búinn að fella heilan helling af grindum og mig langar bara í pásu… en það er dáldið erfitt að stoppa upp. Það er orðið dáldið slæmt þegar maður nýtur varla sólarupprásarinnar eða barna að leik lengur… lítil bros eru vanalega hæðnisglott frá svokölluðum vinum mínum… mér er líka orðið nákvæmlega sama þó allir sem ég þekki lesi þetta því að það breytir varla neinu lengur…...

Re: Lesbía á skotskónum

í Knattspyrna fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Þessi titill er svo mikil snilld… Athugið það að þið lásuð þetta öll og þess vegna virkaði hann frábærlega ;) En hvað er að ykkur öllum??? Allir vita að Olga er lesbía og ef þið hafið eitthvað í kollinum, þá ættuð þið að vita það að það er ekkert til að skammast sín fyrir… þess vegna má titillinn alveg vera svona fyrir mér, mér finnst það alls ekki niðurlægjandi fyrir Olgu ;) kv. pardus

Re: Uppnám í leginu

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Mjög flott ;)

Ekki djók

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ljóð mín eru aldrei djók Gústi minn… Þau eru stundum ýkt upp en þau segja alltaf mína sönnu líðan í það og það skiptið (nema auðvitað í klámvísum og klámljóðum). Ég er ekki á leiðinni að stúta sjálfum mér, ég var bara mjög depressed í augnablikinu þegar ég sendi það inn. Kannski var ég full þunglyndislegur í þetta skipti en mundu bara að ég meika það ekki heldur… Over and out…pardus

Re: Keep your faith

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Mjög flott hjá þér… sjálfur trúi ég ekki á guð en þetta var mjög gott… kveðja… pardusinn

???????

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég veit ekki alveg hvað ljóðið er um ??? Jæja… allavega… það er svo sem ágætt

Re: Enn eitt deyjandi kattardýr

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Takk… allir…

Re: Fjaðraský á blóðrauðum himni...

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Þakka ykkur báðum fyrir…

Re: týndist, hvarf?

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
;)

Re: týndist, hvarf?

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Þetta ljóð er hrein snilld krilli… ég var frekar lengi að lesa það en það var þess virði… djöfulsins kjaftæði ;)

Re: Hvað Karlmenn segja við konur og hvað þeir meina.

í Rómantík fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég er svo sammála geirag. Kvenfólk er mun verra hvað “dulmál” varðar og það sem við karlarnir segjum er vanalega hreint og beint út… (vanalega, ekki alltaf). Þið kvensur eruð aftur á móti eitt stórt milljarða bita púsluspil sem engum tekst að raða saman. Og bitarnir eru þar að auki allir í eins litum sem gerir þetta enn erfiðara fyrir. En annars get ég ekki sagt að mér hafi þótt þessi “brandari” sérstaklega fyndinn… nokkrir fyndnir punktar sem ég gat hlegið að en restin var eiginlega bara...

Re: andvana

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
*sniff* *sniff* Æi… þetta er geðveikt sorglegt ljóð :( Maður fær svona tómleikatilfinningu og manni líður geðveikt illa… Þetta ljóð snerti mig rosalega mikið… það er frábærlega samið og ég fékk hroll… Til hamingju og bravó… pardus

Re: Where is all the love?

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Þetta er mjög gott ljóð… *klapp* *klapp*. Vel samið og góð ádeila og fínn boðskapur… Annars… ertu að auglýsa sígarettur eða á nafnið þitt að vera “WestCost”??? Sígaretturnar eru nefnilega stafsettar “WestCoast” með “a”… kv. pardus
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok