Með kveðju til allra hérna á jörð... bless …ég segi öllum hversu illa mér líður í myrkri hugarskots míns
…ég rita ljóð um tilfinningar þær er éta mig að innan
…svik stríðni einelti og depurð liggja milli lína minna
…en þið lítið á það sem innantóm orð á blaði…

…líðan mín er sönn en þær persónur sem ég þekki þekkja hana ekki
…hamingjan streymir í kringum mig en ég næ ei dropa af henni
…vinir og ættingjar brosa er ég kreisti upp úr mér hlátri
…og telja að allt sé í lagi hjá mér…

…loks fæ ég nóg og segi mína skoðun - mína líðan
…um eyru mín streyma orð huggunar og loforða um betri framkomu
…ég brosi og treysti á það að þið efnið þau
…en við svikin fell ég enn lengra niður…

…togaður upp og hrint aftur niður
…lengra og lengra er ég drukkna hér
…botninum náð og tárin þau svíða
…og kinnarnar rauðar sem brennandi bál…

…líðan mín versnar með degi hverjum
…ástarsorg söknuður svik og einelti
…stríðni hunsun tár og blygðun
…eru allt sem ég get hugsað um nú…

…dagarnir langir renna í eitt
…næturnar andvaka móki ég kyrr
…með sársauka í hjarta og skjálfta í höndum
…strýk ég yfir haus minn sem springur brátt…

…því segi ég bless við þá alla sem skilja
…að mín líðan er rituð í þessu síðasta ljóði
…botninum náð og ég drukkna í tárum
…sálin er horfin á veg undan mér
…kannski ég komi aftur á ný
…til að sjá hvaða þýðingu það hafði
…að ef einhver bar sanna ást til mín
…hvort felli hann tár yfir gröfinni minni…

…ég bið að heilsa öllum þeim er hlusta
…ég bið að heilsa öllum þeim er ég unni
…þó þið hafið sært mig og dregið mig niður
…þá held ég að ég brátt muni fyrirgefa það…

…farinn með sorg og söknuð í hjarta
…trúi á tómið sem tekur við mér
…kannski ég ferðist upp í himnana bjarta
…en jafnvel helvíti er skárra en það sem er hér…


……………….kveðja……………….
……………….pardus……………….

;/
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.