í samræmi við áföll ársins
hefur nú verið ráðist
í viðgerðir á sálinni…

minnsti hluti heilans
sem áður kallaðist
Skynsemi
og rekin var fyrir stórbrotinn misskilning úr litlum heilanum
hefur loksins komið aftur og beðið um að vera endurráðin
til að sinna þessum þörfu störfum sem legið hafa óunnin
í alltof langan tíma.

hægri hluti hjartans
sem áður dældi
engu blóði
og var látið liggja meðvitundarlaust svo mánuðum skipti
hefur loksins verið vakið með snarhasti aftur til lífsins
og er það nú að nudda stírurnar úr hálfblindum augunum
…sem falla þó reyndar alltof oft í freistni.



eftir þessar gagnlegu endurbætur
og aðrar nauðsynlegar hreingerningar
hefur hlutabréfaverð
í Soul 473.820.514.696 inc. hækkað aftur…

eftir að fyrrum hluthafi seldi sinn meirihluta
er núna beðið eftir nýjum tilboðum
og nýju hlutafé
til að halda fyrirtækinu gangandi…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.