Á svona degi,
svona æðisbjörtum degi
þegar skýin fara í loftköstum
yfir landinu
og sólin skellihlær,
þá eru orð ekki nauðsyn
því hjörtu okkar
slá í takt.