Glenn Hoddle, stjóri Tottenham, gerir það ekki endasleppt á leikmannamarkaðnum þessa dagana en nýjustu fréttir herma að hann sé á höttunum eftir hollenska landsliðsmanninum Clarence Seedorf sem spilar með Inter á Ítalíu. Seedorf hefur átt erfitt uppdráttar hjá Inter og umboðsmaður hans hefur gefið það út að hann hafi mikinn áhuga á því að spila á Englandi. “Við gætum haft áhuga. Tíminn mun leiða það í ljós,” sagði David Buchler, varastjórnarformaður Spurs. Seedorf fór til Inter frá Real...