Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Mateja Kezman (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Mateja Kezman er öllum góðkunnur. Hann sló fyrst í gegn með Partizan Belgrad og flutti sig þaðan til PSV þar sem hann skoraði 105 mörk á 4 árum. Svo fór nú að halla undan fæti hjá kappa og fór hann til Chelsea, þar sem hann náði aðeins að skora fjögur mörk. Spurningin er þessi til áhugamanna!! Ég sem Man Utd aðdáandi hefði viljað fá hann til liðsins fyrir féð sem Atletico Madrid greiddi fyrir hann, aðeins 5 milljón pund!!! Er enski boltinn svona erfiður fyrir Kezman eða hefði hann bara þurft...

O'Leary hættur!!! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Stuðningsmenn Leeds United urðu fyrir áfalli í morgun þegar framkvæmdarstjóri þeirra David O'Leary og stjórn Leeds komust að samkomulagi um að hann skildi látinn fara. O'Leary var búinn að vera við stjórnvölin hjá Leeds í fjögur árangursrík ár. Þetta sá ég á planetfootball.com Þetta er alger synd. Mér finnst hann tvímælalaust besti framkvæmdarstjórinn í deildinni. Allavega hefur hann gert snilldarkaup á leikmönnum og fleira þess háttar. T.D. kaupin á Rio, hreinasta snilld, maðurinn er...

Veriði raunsæ!!! (23 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Góðir hálsar!!! Ég vildi nú bara koma einu á framfæri hér! Dómarar eru bara hluti af leiknum, þeir eru mannlegir eins og við hin, þeir gera mistök þó að mér finnist þau hafa verið ansi mörg og afdrifarík í þessari keppni. En engu að síður er ekki annað hægt en að dást að SUMUM, kannski FLESTUM dómurum í keppninni. T.d. Frisk frá Svíþjóð, Collina og fleirum. Ef til vill má líka dást að aðstoðardómurunum í keppninni (línuvörðunum). Hversu oft í leik þarf aðstoðardómari að taka erfiðar...

Ferguson vill mótspyrnu (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, svaraði í gær yfirlýsingum Gerards Houllier varðandi yfirburði United í úrvalsdeildinnni og skoraði á þá að leggja sig fram við að gera kapphlaupið að titlinum hið erfiðasta. Eins og greint hefur verið frá þá sagði Houllier enga breytingu verða á því að önnur lið myndu bara spila um annað sætið á eftir United. “Ef við erum þegar búnir að vinna þá get ég náð í bónusinn minn strax,” segir Ferguson. “Ef satt skal segja þá mun ég fagna...

Cragnotti tilbúinn að fórna Nesta fyrir Mendieta!! (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sergio Cragnotti, sem enn sinnir starfi forseta Lazio, segist vera tilbúinn til þess að fórna fyrirliða félagsins, Alessandro Nesta, til þess að landa Gaizka Mendieta til félagsins. “Ef við ætlum að ná í Mendieta þá er ég ansi hræddur um að við verðum að selja Alessandro Nesta. En ef það gerist þá munum við finna jafnoka Nesta og kaupa hann til Lazio,” sagði Cragnotti. Lazio hefur því bæst í hóp fjölmargra liða sem vilja fá Mendieta til sín, en Cragnotti er orðinn örvæntingarfullur í leit...

Zidane til Real Staðfest!!!!!! (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það kostar sitt fyrir knattspyrnulið að reyna verða besta félagslið Evrópu. Mörg lið eru tilkölluð en aðeins eitt útvalið og hafa 26 af stærstu liðum Evrópu eytt sem samsvarar 55 milljörðum króna í leikmenn það sem af er hausti. Frakkinn Zinedine Zidane varð í gær dýrasti knattspyrnumaður heims þegar hann var seldur frá Juventus til Real Madrid fyrir rúma sex milljarða króna. Það sem er kannski ótrúlegast við þetta er að yfirvofandi eru breytingar á leikmannaskiptum samkvæmt tilskipun...

Maldini vill Rossi en ekki Abbiati (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Maldini greindi frá því nýlega að frekar vildi hann hafa Seba Rossi í markinu fyrir aftan sig en Abbiati. Hann segir að reynslan segi svo mikið til sín. Rossi kom inná fyrir Abbiati í leik um daginn og stóð sig með einstakri prýði. Cesare Maldini er sammála Paolo Maldini í þessu máli.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok