Síðar í vikunni munu fara fram viðræður milli umboðsmanns argentínska knattspyrnumannsins Juan Sebastien Veron og forráðamanna Manchester United. Tilgangurinn er að sjálfsögðu að ræða hugsanleg kaup United á kappanum fyrir 20 milljónir punda. Veron, sem er 26 ára gamall og leikur með Lazio á Ítalíu, hefur lýst því yfir að hann hafi áhuga á að ganga til liðs við Englandsmeistarana.





-www.visir.is-