Svo gæti farið að Marcelo Lippi, fyrrum þjálfari Inter Milan og Juventus, muni taka við Lazio í haust þrátt fyrir að Dino Zoff hafi samning út næsta tímabil. Sergio Cragnotti, forseti félagsins, er óánægður með að Zoff skuli ekki hafa trú á að Lazio geti unnið ítalska meistaratitilinn en Lazio er sem stendur 12 stigum á eftir Roma.