Oliver Bierhoff hefur sem kunnugt er fengið gott tilboð frá Marseille en hann vill engu að síður bíða og sjá hvað Jean Tigana, stjóri Fulham, gerir þar sem úrvalsdeildin enska virðist freista hans meira en sú franska. Eitt er víst, Bierhoff hinn þýski hefur litla von um sæti í liði AC Milan á komandi vetri eftir kaupstaðarferðir Fatih Terim í sumar sem skilað hafa sterkum framherjum.