Ég býst við þú eigir við dúr með lítilli sjöund þegar þú segir dúr sjöund (t.d. C7= C, E, G, Bb) en ekki dúr með stórri sjöund (t.d Cmaj7 = C, E, G, B). Já, hann er leyfður í klassík og er mjög algengur. Hann er 5. heimahljómurinn í dúr. Það eru líka notaðir minkaðir hljómar (diminshed chords sem er Rót, b3 og b5) í klassík. Tónskrattar eru alveg notaðir í klassískri tónlist því í þeim er ákveðinn spenna (tension) sem er látinn leysast. G7 (b5 á milli B og f) leysist mjög vel niður á C og...