Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

omaromar
omaromar Notandi frá fornöld Karlmaður
368 stig

Mánuður Hiphop sögunnar (3 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þá er bara kominn nóvember …mánðuður Hiphop sögunnar ! Þess má geta að Hiphop verður formlega 29 ára í nóvember og Zulu Nation verður 30 ára í nóvember :) Mig langar líka til að benda á að á Hiphop.is verður eitthvað af greinum úr sögu Hiphop-menningar í nóvember.

Hiphop á Menningarnótt (18 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Nú er að líða að hinni árlegu Menningarnótt í Reykjavíkurborg. Þetta er í áttunda skiptið sem hún er haldin og aldrei verið veglegri. Ekki hefur oft verið boðið upp á mikið Hiphop á þessum viðburði en nú er stundin önnur. TFA mun standa að veislu í portinu bakvið Alþjóðahúsið (Hverfisgötu 18, við hliðina á Exodus). Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Alþjóðahúsið, Höfuðborgarstofu, Exodus og Málningu ehf. Þar mun ýmislegt fara fram: graffiti, breikdans, skífuskank, taktrapp, opinn...

Einvígi Skífuskankaranna (0 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 1 mánuði
..þar sem greinin um viðburðinn hér á Huga virðist aldrei ætla að birtast langar mig bara að minna fólk á að næsta laugardag munu plötusnúðar keppast á stálborðunum í Stúdentakjallaranum. Takt-rapparar (beatbox) munu svo skora hvorn annan á hólm í “beatbox-battle”. Allar nánari upplýsingar eru á TFA.is …að sjálfsögðu :)

Einvígi skífuskankaranna - TFA (12 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 1 mánuði
TFA mun standa að einvígi milli skífuskankara næsta laugardagskvöld í Stúdentakjallaranum ásamt fyrstu opinberu áskorendakeppninni í takt-rappi (beatbox). Lítið hefur borið á menningu snúningsborðanna undanfarið þar sem rapparar hafa verið að fá allt sviðsljósið undanfarið. DJ einvígið á laugardaginn verður því gott krydd í blómstrandi senu Hiphop fylgjenda. Takt-rapp (beatbox) hefur verið stundað af nokkrum einstaklingum síðustu ár en nú er líklegt að við fáum að sjá hversu góðir þeir eru í...

Einvígi Skífuskankaranna ! --skráning hafin-- (1 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 1 mánuði
TFA mun standa fyrir “Einvígi Skífuskankaranna” í lok mánaðarins og þá munu skífuskankarar berjast á stálborðunum. Skráning er hafin ! Upplýsingar fyrir þátttakendur má finna á TFA.is BETUR AUGLÝST SÍÐAR

Tónleikar í Austurbæ !!!!! (5 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Nú er allt loksins komið á hreint með tónleikana í kvöld í Austurbæ. …allar upplýsingar á TFA.IS !!!!

Graffiti Skissukeppni (9 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 4 mánuðum
SPRITE og TFA munu standa fyrir skissukeppni sem snýst um að gera skissu fyrir 10 metra langan vegg í Undirheimum FB og spreyja hann svo. Skissurnar eiga að vera með Sprite þema og lógóinu þeirra í frjálsum stíl. Nánar um þetta á TFA.is

TFA kynnir Áramótaveislu ! (30 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 5 mánuðum
TFA mun standa að sannkallaðari Hiphop og Drum & Bass veislu núna um áramótin. Þrjár hljómsveitir munu koma fram ásamt fjöldanum öllum af plötusnúðum. Staðurinn er Þórscafé og tímasetningin er gamlárskvöld. Hljómsveitirnar sem munu spila á þessum fyrverandi herramannaklúbbi eru sérvaldar fyrir þessa fyrstu Hiphop tónleika ársins 2003. Fyrst skal nefna stuðbandið ógurlega, Bent & 7Berg sem eru vel þekktir fyrir tryllta sviðsframkomu. Þremeningarnir í O.N.E. munu svo spila en þeir hafa verið...

DJ Intro keppir í Heimsmeistarkeppni Vestax (12 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sigurvegari Skífuskanks #3, sem TFA hélt í sumar, var DJ Intro. Keppnin var undankeppni fyrir Skandinavíuriðil Vestax Extravaganza sem svo féll niður vegna óviðráðanlegra orsaka. Þar sem við Íslendingar enduðum á því að verða með einu undankeppnina af Skandinavíuþjóðunum, verður Addi okkar Intro fulltrúi Skandinavíulandanna allra í Heimsmeistara keppni Vestax, “Vestax Extravaganza”. Keppnin er á risaskemmtistaðnum Fabric, fimmtudaginn 21.nóvember og mun Intro etja kappi við 13 aðra...

Skífuskank sýning á Unglist ! (10 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Nú er listahátíð ungs fólks, Unglist, að fara í startgírinn en hún stendur yfir dagana 18.-26.okt og er haldin af Hinu Húsinu. Næsta föstudag (18.okt) verður Unglist opnuð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Að formlegri opnun lokinni tekur við fyrsta formlega Skífuskanksýningin á Íslandi í boði TFA. Þeir plötusnúðar sem munu sýna syrpur eru; dj Intro, dj Fingaprint, dj Big Gee, dj Nino, dj MAT, dj Paranoya og dj Magic. …og ekki nóg með það heldur verða tvö sett af græjum þannig að tveir...

Sýnishorn af Skífuskank 3 (0 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Nú er ég loksins búinn að drullast til þess að henda inn sýnishorni af Skífuskank spólunni á heimasíðu TFA, www.tfa.is. Það má finna sýnishornið undir valmöguleikanum “Skráasafn” og “hreyfing” …jú eða ýta á forsíðumynd síðunnar !! Tími Fyrir Aðgerðir !!

Skífuskank 3 - á sölumyndbandi (11 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Nú hefur TFA gefið út Skífuskank 3 á sölumyndbandi. Á spólunni eru allar syrpur keppninnar auk eitthvað af öðrum atriðum. Spólan fæst keypt í Brim, Þrumunni, Exódus og Writers. Einnig má panta hana á tfa@tfa.is fyrir þá sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Spólan kostar litlar 1.500 krónur. Nánari upplýsingar á heimasíðu TFA: www.tfa.is

TFA : Tími Fyrir Aðgerðir (7 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 9 mánuðum
TFA er komið úr sumarfríi :) Velkomin í bæinn; <a href="http://www.tfa.is">www.tfa.is</a>.

Skífuskank #3 (10 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Viðburðurinn: Laugardaginn 27.júlí mun áhugafélagið TFA (Tími Fyrir Aðgerðir) standa fyrir plötusnúðakeppninni Skífuskank #3. Þetta mun verða fimmta plötusnúðakeppnin sem TFA stendur fyrir og sú allra veglegasta. Keppnin verður tvískipt, ‘syrpu-riðill’ og ‘skank-riðill’. Keppendur sem lenda í efstu þremur sætum syrpu-riðils munu svo taka þátt í Skandinavíuriðli Vestax Extravaganza og keppa um þátttöku í heimsmeistarakeppni Vestax Extravaganza. Vestax Extravaganza: Er sú keppni, sem haldin er...

Skífuskank #3 (13 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 10 mánuðum
TFA mun standa fyrir Skífuskank #3 í seinni hluta júlí. Þessi keppni verður sú stærsta hingað til því hún mun verða undankeppni fyrir Skandinavíuriðil “Vestax Extravaganza”. Nánari upplýsingar um keppnina verða gefnar þegar nær dregur en upplýsingar um Vestax keppnina má finna á www.vestax.com Hér með er auglýst eftir þáttakendum í keppnina. Leitað er að keppendum í tvo riðla; ‘scratch’ riðill og ‘battle’ riðill. Sigurverari í ‘battle’ riðli tekur þátt í Skandinavíuriðlinum. Til að skrá sig...

Hvernig var Jeru The Damaja á Gauknum ?? (0 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 11 mánuðum

Hiphop í Undirtónum !! (6 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég verð bara að fá smá útrás með þetta !!! Ég sá síðasta Undirtónablað fyrir stuttu. Þar prýddu Afkvæmi Guðanna forsíðuna ásamt stórum titli “Hip-hop”. Þetta lofaði góðu, þarna hélt ég að ég myndi sjá heilsteypt viðtal við Afkvæmi Guðanna og jafnvel smá lesningu um hiphop. ….en nei, þetta var ein opna þar sem önnur síðan var með myndum og hin var hálf af texta. Textinn var 3/4 um Britney Spears og MTV og restin var bara 90% bull !!! Ekki var farið með annað en rangmæli og vitleysu í þessum...

Sage til sölu !!! (3 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 1 mánuði
Meistari Sage Francis er mættur á krummaskuðið okkar ásamt sinni heittelskuðu. Shalem B og frú mæta hinsvegar á fimmtudagsmorgun til landsins og svo rokka þeir saman á Gauknum um kvöldið (eins og flestir ættu að vita). Eitt sem ekki hefur komið fram, er að Sage kallinn er með 50 bootleg diska af óútgefnu efni og heyrzt hefur að Shalem ætli að mæta með meira efni og t-boli svo eitthvað sé nefnt. Þessi fáu eintök sem Sage kom með, klárast pottþétt þannig að fyrstur kemur, fyrstur fær ! Ég hef...

Battle of the MC's (6 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég verð aðeins að forvitnast …veit einhver hvernig gengur að plana þetta Battle of the MC's dæmi ??? Hvenær er það planað og hver heldur það og svona (er það Robbi eða e-r annar ??). Er kannské búið að hætta við það ? ÓmarÓmar/TFA

Koma Jungle Brothers nokkuð ???? (10 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nú eru Jungle Brothers frá New York (held ég). Ætli þeir komist nokkuð hingað fyrir helgina vegna ástandsins ? Kannski létust einhverjir sem þeir þekkja og kannski hafa þeir minnstan áhuga á að halda skemmtun eftir svona viðburð ! Ég vona að allt gangi upp og þeir komi ..en ég ætla að bíða með að kaupa miða þangað til :/ Og svo El Da Sensei ! Veit einhver hvaðan hann er úr Bandaríkjunum ..heyrði að hann væri frá vesturströndinni þannig að hann vonandi kemst óhindraður á klakann. Krossum...

könnunin ...!!! (20 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þetta fer nú að verða dáldið þreytandi hvað kannanirnar eru oft lélegar !!! T.d sú sem er núna “áhrifamesta hljómsveitin” …ég trúi því ekki að Reflection Eternal sé ekki þarna og hvað um gutta eins og KRS One eða þá Loop Troop …möguleikinn “einhver önnur!” ..mætti alveg fylgja með þegar menn (eða konur) eru að senda inn svona kannanir. e.s. mín áhrifamesta hljómsveit er Reflection Eternal ..no doubt !!

Rauðatorgið ! ...mjög kúl center (0 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég ásamt fullt af öðru fólki, mætti á opnun Rauðatorgsins eða nýja skeitparkinu sem opnaði í gær (7.júlí). Þessi staður er mjög kúl, hann er risastór og á mjög góðum stað. Þarna geta allir leikið sér saman, skeitarar, skautarar, freestyle-hjólarar og aðrir töffarar. Vonandi verður þetta einnig smá center fyrir graffara því ég tel að það sé góð þörf á því (props til Orra ofurbrúsa!). Mér sýndist þetta líka eiga að vera gokart-braut ..veit ekkert um það meir. Ef þið eruð ekki búin að tékka á...

Tónleikar í sumar !!! (10 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þeir sem hlustuðu á Chronic á laugardaginn vita þetta væntanlega !!! Vikuna eftir LC verður breskt hip hop í hávegum haft ..missti reyndar af því hverjir það verða …líklegast mjög kúl !! en… LOOP TROOP ERU VÆNTANLEGIR !!! ..og það er feitt !! ..það liggur við að það verið jafn feitt og djammið næstu helgi, með LONE CATALYSTS :) Svo er eflaust meira í planinu ..stór nöfn hafa verið nefnd ;) Hip Hop að eilífu ..amen !

Lone Catalysts heimasíða komin upp !! (0 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú er komin upp heimasíða um djammið. Hún mun verða uppfærð eitthvað fyrir tónleikana með nánari upplýsingum um allt dæmið. Á síðunni má finna lög með Lone Catalysts, myndir, upplýsingar o.fl. Endilega tékkið á henni !!! …og netfangið á síðuna um <b>LONE CATALYSTS</b> er <a href="http://www.tfa.is/“><font color=”white“ size=”4"><b><i> www.tfa.is </i></b></font></a

besti skífuskankarinn á landinu er... (0 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok