Meistari Sage Francis er mættur á krummaskuðið okkar ásamt sinni heittelskuðu. Shalem B og frú mæta hinsvegar á fimmtudagsmorgun til landsins og svo rokka þeir saman á Gauknum um kvöldið (eins og flestir ættu að vita).
Eitt sem ekki hefur komið fram, er að Sage kallinn er með 50 bootleg diska af óútgefnu efni og heyrzt hefur að Shalem ætli að mæta með meira efni og t-boli svo eitthvað sé nefnt.
Þessi fáu eintök sem Sage kom með, klárast pottþétt þannig að fyrstur kemur, fyrstur fær ! Ég hef ekki hugmynd hvað þett á að kosta …kemur bara í ljós held ég.
Ég ætlaði annars bara að láta lýðinn vita um þetta alltsaman, þýðir ekki að sitja á svona upplýsingum held ég !