Ég ásamt fullt af öðru fólki, mætti á opnun Rauðatorgsins eða nýja skeitparkinu sem opnaði í gær (7.júlí).
Þessi staður er mjög kúl, hann er risastór og á mjög góðum stað. Þarna geta allir leikið sér saman, skeitarar, skautarar, freestyle-hjólarar og aðrir töffarar. Vonandi verður þetta einnig smá center fyrir graffara því ég tel að það sé góð þörf á því (props til Orra ofurbrúsa!). Mér sýndist þetta líka eiga að vera gokart-braut ..veit ekkert um það meir.
Ef þið eruð ekki búin að tékka á þessu, …þá er það ykkar missir!
Þetta er að sjálfsögðu allt sponserað af Rautt GSM þjónustunni og fá þeir feitan plús fyrir það.

ps. ef þið viljið vita meira um þetta eða sjá myndir þaðan, kíkið á svölustu síðu Íslands, www.2def.com !