Sigurvegari Skífuskanks #3, sem TFA hélt í sumar, var DJ Intro. Keppnin var undankeppni fyrir Skandinavíuriðil Vestax Extravaganza sem svo féll niður vegna óviðráðanlegra orsaka.

Þar sem við Íslendingar enduðum á því að verða með einu undankeppnina af Skandinavíuþjóðunum, verður Addi okkar Intro fulltrúi Skandinavíulandanna allra í Heimsmeistara keppni Vestax, “Vestax Extravaganza”.

Keppnin er á risaskemmtistaðnum Fabric, fimmtudaginn 21.nóvember og mun Intro etja kappi við 13 aðra plötusnúða allstaðar að úr heiminum. Dómarar verða heimsþekktir plötusnúðar sem munu svo skemmta gestum seinna um kvöldið.

Allar nánari upplýsingar um þetta má finna á heimasíðu TFA, www.tfa.is.

Gangi þér vel Addi !!