Gott hjá þér að hafa samband við Sálarrannsóknarfélagið. Ég er líka með nunnu eins og þú. Það að fara í andaglas getur verið varhugavert og það ættu engir að gera það, en það er nú með það eins og svo margt annað sem getur verið hættulegt, það virkar svo spennandi. Ég er sjálf í stjórn ónefnds Sálarrannsóknarfélags og það er fullt af fólki sem hringir þangað eftir hjálp. Sumum dugar það að tala við þann aðila sem er við símann hverju sinni en aðrir þurfa að tala við miðla til að fá hjálp af...