Bara að láta ykkur vita hvar þeir fást.
Ég er búin að leita víða að snjógalla á 7 ára guttann minn, en hvergi séð neinn á innan við 5000kr, þangað til í dag, þá skrapp ég í Rúmfatalagerinn í Holtagörðum til að kaupa eitthvað allt annað en snjógalla. Á leiðinni út rak ég augun í þá og fór að skoða. Ég var ekki lengi að ákveða mig.
Þeir eru úr Beaver-efni, sem er það sterkasta sem ég hef kynnst í svona flíkum, mjög fallegir og þykkir, vatnsheldir með gúmmíi frá hnjám og niður að framan og frá bossanum og niður að aftan, svo er hægt að hneppa öllu fóðrinu úr og þá er kominn regngalli! Verðið frábært 2990kr!!!
Betra að drífa í að kaupa áður en snjórinn kemur aftur.
rebsig.