Sælir hugarar, síðastliðinn laugardag keypti ég mér hinn magnaða leik Nfl Street 2. Ég var ekki alveg viss hvaða leik ég ætlaði að kaupa mér en því að ég hafði heyrt hversu góða dóma hann fékk og séð mörg screenshot úr honum, þá ákvað ég að kaupa hann. Ég gekk sæll útúr Media Markt með rauðan poka í hendi, og stefndi heimleiðis. Þegar ég kom heim flýtti ég mér upp og kveikti á Xbox, setti leikinn í og byrjaði að spila. Og vá, þvílíkur leikur. Möguleikarnir eru endalausir, þú getur keppt allt...