Blink 182
Tom eða Thomas Matthew DeLonge fæddist í Poway, San Diego 13 desember 1975. Tom uppgötvaði áfengi á ungum aldri og var rekin úr skóla fyrir 15 afmælisdag sinn fyrir það að drekka á körfuboltaleik. Hann var einning þekktur fyrir að vekja foreldra sína á óguðlegum tíma með því að spila hryllilega illa á trompett. Þótt að tónlistarhæfileikar hans sýndu sig ekki á trompettinu byrjaði hann að æfa á gítar. Hann fékk sinn fyrsta gítar frá vin sínum sem vann á ruslahaug og einn dag var hent gítar sem var í fullkomnu ástandi og gaf hann Tom gítarinn. Vinur hans kynnti hann fyrir pönki á fjölskyldu ferðalagi og varð Tom ástfangin af hljómsveitum eins og Stiff little fingers, Dinosaur jr. og The Decendents.

Mark Allen Hoppur hét næsti hlekkurinn í hljómsveitinni. Hann fæddist í Kaliforníu 15 mars árið 1972. Þó að hann fæddist í Kaliforníu þá vann pabbi hans fyrir bandaríska herinn og þess vegna átti hann yfirleitt aldrei heima á einum stað í meira en tvö ár. Þegar að foreldrar hans skildu þegar að Mark var 14, flutti hann með pabba sínum til Washington. Þegar að hann varð 16 fluttu þeir til Ridgecrest nálægt San Diego. Mark byrjaði að fikta við að spila á bassa þegar að hann var 14. Hann hafði hjálpað að mála hús og að launum fékk hann rafmagnsbassa og magnara. Vinkona systur Mark's var kærasta Tom og frétti Tom það að Marl væri mikið fyrir pönk og kynni á bassa. Fyrsta kvöldið sem að Mark fór að hitta Tom seint í ágúst '92 klifraði hann uppá ljósastaur fyrir utan húsið hans og datt. Ekkert alvarlegt bara nokkrar vikur á hækjum. Ekki mjög löngu síðar voru þeir farnir að semja einföld lög og spila fyrir hvern sem er sem vildi hlusta.

Það varð þeim ljóst að þeir þyrftu trommara til að stofna hljómsveit og til allra lukku þekkti Tom einn strák sem spilaði á trommur í skólanum hans sem hét Scott. Þó að Scott hafi verið meira fyrir Metal þá átti hann trommu sett og kannaðist aðeins við pönk rokk. Fljótlega voru Blink farnir að spila í skólanum þeirra og a litlum skólaböllum og tóku lög eins og “Does my Breath Smell?” og “Ben Wah Balls”.
SUuup