Sælir, áður en ég byrja ætla ég að taka fram að þetta eru MÍNAR skoðanir, ég veit að það er sjálfsagt mikið vitlaust við þær og annað.

Ég ehf verið að pæla hvrt að nýr rasismi sé að byrja. Það eru engin aðrir en Ameríkanarnir sem eru teknir fyrir núna, um daginn var ég að lesa grein á deiglunni um að George Bush ætlaði að senda geimfar á Mars og þá sá ég svör á borð við að við ættum bara öll að senda alla “Kanana” til Mars eða láta þá vera hérna og flytja öll í burtu.

Ég veit að þeir gera ekki allt rétt, en erum við eitthvað betri, ég meina, það erum við sem erum með rasisma á móti þeim og annað. Sérstakleag hef ég tekið eftir því að allt sem Ameríkanar gera er rangt, því að George Bush er við völd. Mér líkar alls ekki við þennan gaur, alls ekki, en hann á sínar hugmyndir og er algjör óþarfi að hata hann útaf því að hann hefur gert mistök.

Svo líka hef ég verið að læra um í sögu hjá mér, þegar þessi nornatímabil voru, þá gat maður bara sagt að hún er norn, drepum hana og þú þurftir enga staðreynd fyrir því. Sama gerðist í Ameríku þegar kommúnistinn var íhugum fólks. Þá sagði maður bara að hann væri kommúnismi og þá var hann rekinn og svívirtur. Sama gæti gerst í framtíðinni, en það eru enagr nornir eða kommúnistar, nei það eru Arabarnir og þar í kring. Fólk heldur að þeir séu allir hryðjuverkamenn því að sumri hafa gert hryðjuverkaárásir, og sagði kennarinn minn mér það að það er mjög erfitt að fá vinnu fyrir þá í löndum einsog í Ameríku, því að þeir eru með RASISMA gegn þeim, halda að þeir séu hryðjuverkamenn eða eitthvað svoleiðis

Við veðrum bara muna að passa okkur þegar svona á við sögu og vona ég að rasismin gegn Aröbum og Bandaríkjamönnum fari ekki stækkandi.


Bless í bili, kv.rollan6
SUuup