Höfunduréttur fellur ekki úr gildi við það að fara á netið, hehe, það væri nú ljóta ruglið. Ég átti nú við að líklega hefur hún afritað söguna af snerpu.is/net eða öðrum álíka rafbókasöfnum sem byggja á því að birta gamalt efni sem hefur ekki lengur höfundarrétt, eins og íslendingasögurnar, biblíuna, sögur frá nítjándu öld og ofanverðri tuttugustu öld; eða efni þar sem höfundurinn hefur framsalað rétti sínum, eins og með því að gefa leyfi fyrir ótakmarkaðri birtingu á netinu.