Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Álit? (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 16 árum, 5 mánuðum
http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=F3JC-AP092M Hvernig lýst ykkur á þessa? Er að fara að kaupa mér nýja fartölvu og hef ekkert vit á svona. Veit bara að ég vil ekki Windows Vista, og ég vil helst hafa innbyggða vefmyndavél. Komment plz.

Geggjað sætur bassamagnari til sölu (3 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Er að selja 40w Ashdown bassamagnara. Keyptur fyrir 2-3 árum og er mjög lítið notaður. Mjög sætur og er eins og nýr. Lítur út eins og þessi: http://www.musix.ch/im/img108779-189681.jpg Powersnúra fylgir. Hvað segiði… 20þús kjell? Sendið bara skilaboð. Kommon, 18þús? Plís.

Frosinn bíll - aftur (58 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Lásarnir í bílnum mínum eru enn einusinni frosnir. Hvað get ég gert annað en að bíða eftir vorinu? Er eitthvað fyrirtæki sem gæti sent starfsmann heim til mín og reynt að redda þessu? Ég kem honum allavega ekki neitt sjálf fyrr en í vor. Hjálp óskast sem fyrst.

Bassamagnari til sölu (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Er að selja 40w Ashdown bassamagnara. Keyptur fyrir 2-3 árum og er mjög lítið notaður. Mjög sætur og er eins og nýr. Lítur út eins og þessi: http://www.musix.ch/im/img108779-189681.jpg Powersnúra fylgir. Hvað segiði… 20þús kjell? Sendið bara skilaboð.

Bilað útvarp? (7 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Hvað er að asna bílaútvarpinu mínu? Þegar ég starta bílnum kviknar á því eins og venjulega, en svo slökknar bara eftir 6 sekúndur. Þá ýti ég á útvarpstakkann og þá kviknar á því aftur í sex sekúndur, en slökknar svo aftur. Dagurinn verður alveg ómögulegur ef ég hlusta ekki á Zúúber á morgnana, hvað er hægt að gera í þessu? Og fer ég á venjulegt verkstæði til að tékka á þessu, eða til rafvirkja eða einhvers svoleiðis?

Lolly? (11 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Afhverju er Lolly flutt aftur til Lou?

Samfelluskyrtur? (29 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Hvar fæ ég samfelluskyrtur á Íslandi? Svona flottar dömuskyrtur sem er hægt að smella saman í klofinu svo þær haldist á sínum stað.

Íslensk orð (6 álit)

í Tungumál fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ég þarf smá hjálp með orð fyrir ljóðaritgerð. “Gredda” er ekki nógu gott orð, er ekki til neitt betra orð sem merkir það sama? Mér dettur ekkert í hug sjálfri. Einnig þarf ég orð sem lýsir því að vera fullur af losta, “lostafullur” hljómar asnalega.

Frosinn lás (29 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Lásinn á bílnum mínum er frosinn og ég er í augnablikinu að missa af öðrum tímanum mínum í dag afþví ég kemst ekki í bílinn. Ég er búin að prófa lásasprey en það gerist ekkert! Hjálp óskast. Bætt við 17. október 2007 - 14:08 Getur enginn komið með alvöru ráð? Við hvern tala ég til að láta laga þetta, lásasmið eða bara venjulegt verkstæði eða hvað?

Bumbuveski? (1 álit)

í Ferðalög fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Hvar fær maður svona veski sem maður hefur innanundir fötunum og lætur mann líta út fyrir að hafa geðveika neðribumbu?

Vöðvabólga (30 álit)

í Heilsa fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ég er alltaf með vöðvabólgu. Ég vinn ekki erfiðisvinnu, beiti líkamanum rétt og hef í rauninni enga ástæða til að hafa svona mikla vöðvabólgu. Eeeen ég er endalaust smjattandi á íbúfeni til að komast í gegnum daginn, og fæ oft slæma höfuðverki útaf þessu. Er búin að prófa að tala við lækni, þurfti að bíða í rúmar tvær vikur eftir tíma, en þá skrifaði hann bara uppá meira íbúfen. Það eru takmörk fyrir hve mikið má taka af því, og ég vil frekar bara losna við þessa asnavöðvabólgu. Hvað get ég...

Sorg eftir Jóhann Sigurjónsson? Hjálp (3 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Vei, vei, yfir hinni föllnu borg! Hvar eru þín stræti, þínir turnar, og ljóshafið, yndi næturinnar? Eins og kórall í djúpum sjó varst þú undir bláum himninum, eins og sylgja úr drifnu silfri hvíldir þú á brjóstum jarðarinnar. Vei, vei! Í dimmum brunnum vaka eitursnákar, og nóttin aumkvast yfir þínum rústum. Jóreykur lífsins þyrlast til himna, menn í aktygjum, vitstola konur í gylltum kerrum. - Gefið mér salt að eta, svo tungan skorpni í mínum munni og minn harmur þagni. Á hvítum hestum...

Vantar hjálp við þráðlaust net! (10 álit)

í Netið fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Óska eftir einhverju klárum til að bjarga þráðlausa netinu mínu, það er í drasli og ég kemst ekki á netið og er þar af leiðandi að falla í skólanum. Ég veit ekki hvað er að, og hæfileikar mínir á þessu sviði eru afar takmarkaðir. Plís, ef einhver telur sig geta hjálpað mér, hringdu í 8693844. Það er gríðarlega mikilvægt að netið komist í lag sem fyrst, þar sem ég þarf að skila skólaverkefnum. Greiðsla í boði.

Error? hjálp tölvunölla óskast (20 álit)

í Tölvuleikir fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Var að kaupa mér tölvuleik, búin að installa, en svo þegar ég ætla að starta honum kemur upp Error: “Unable to create a Direct3D device, please make sure that you have a D3D8 compatible graphics accelerator installed.” Hvað þýðir þetta og hvernig get ég lagað þetta? Ég var orðin svo spennt og ég fer að gráta ef ég get ekki spilað þennan leik.

Pimpa upp Accent (22 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Hvar gæti ég hugsanlega fengið bókahilluspoiler á Accent?

Windows Live Messenger (10 álit)

í Windows fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Hvernig get ég látið webcam virka í þessu drasli? Aðrir sjá mig en ég sé þá ekki. Hjálp.

Mac n' cheese (7 álit)

í Matargerð fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Hvernig er þessi frægi bandaríski makkarónu og ostaréttur? Er þetta einfaldlega bara soðnar makkarónur með osti ofaná, eða hvað?

LOTR bókasett til sölu ódýrt (4 álit)

í Tolkien fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Er að selja 50 ára afmælisútgáfu af The Lord of the Rings eftir JRR Tolkien á ensku. Fjórar bækur í flottu boxi utan um þetta, þrjú bindin af sögunni og svo “Readers Companion” sem er einhver fylgibók eða útskýringar eða eitthvað í þá áttina. Er ekki einusinni búin að opna bækurnar, nema er búin að lesa fyrsta fjórðunginn af bók nr 1. Vel með farið, keypt í Pennanum fyrir þremur vikum, kostar 4700 þar, ég er að selja þetta á 3500 kr!

Tolkien sett til sölu á spottprís! (18 álit)

í Bækur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Er að selja 50 ára afmælisútgáfu af The Lord of the Rings eftir JRR Tolkien á ensku. Fjórar bækur í boxi, þrjú bindin af sögunni og svo “Readers Companion” sem er einhver fylgibók eða útskýringar eða eitthvað í þá áttina. Er ekki einusinni búin að opna bækurnar, nema er búin að lesa fyrsta fjórðunginn af bók nr 1. Vel með farið, keypt í Pennanum fyrir þremur vikum, kostar 4700 þar, ég er að selja þetta á 3500 kr!

Sveitaball næstu helgi? (9 álit)

í Djammið fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Mig langar svo mikið á ball, það er kominn júlí og ég er ekki ennþá búin að fara á eitt einasta ball. Veit einhver um sveitaball einhverstaðar á landinu næstu helgi, með 16 ára aldurstakmark og þær venjulegu sveitaballsreglur að það má fara með ársbirgðir af áfengi inn?

Mjög ósátt við Símann (28 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Já ég á þennan líka fína Sony Ericsson síma sem hefur alltaf reynst mér mjög vel. Nýlega fór hann þó að detta úr sambandi, og ég var hætt að geta notað hann þar sem hann var alltaf sambandslaus. En þar sem hann er ennþá í ábyrgð fór ég með hann í viðgerð, og í Símabúðinni sem ég fór með hann í var mér sagt að þetta tæki viku, þetta væri víst algengur galli í þessarri tegund af símum og að þeir myndu laga hann og senda mér hann svo. Allt í lagi með það. En svo fékk ég símann aftur sendan til...

Sumarönn versló (6 álit)

í Skóli fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég er að taka þrjá áfanga í fjarnámi frá Versló í sumar, en skil þetta ekki alveg, auk þess sem þetta WEBCT kerfi fer rosalega í taugarnar á mér. Þegar ég reyni að skoða hvaða verkefni ég á að gera, koma bara upp einhver verkefni sem átti að vera skilað í janúar eða febrúar og svoleiðis rugl. Og í öðrum áfanga er ekkert inni, engin verkefni eða neitt, þó önnin hafi byrjaði fyrir tveimur vikum eða svo. Er þetta kerfi bara í tómu tjóni hjá mér eða eru kennararnir bara latir? Hvernig er það hjá...

Boston Legal (16 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Er ég búin að missa vitið, eða er verið að sýna gamlan þátt af Boston Legal?

Bíladagar (21 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Jæja, hverjir ætla að skella sér á Bíladaga á Akureyri? Mig langar ótrúlega mikið, ætlaði í fyrra en þá stungu mamma og pabbi bara af til útlanda og ég þurfti að fóðra hálffullorðinn bróður minn á meðan. Annars hef ég verið að heyra að undir 18 komist ekki inn á tjaldsvæðin án forráðamanna og þess háttar vesen. Eru öll tjaldsvæðin lokuð þannig?

Laukræktun (28 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Er einhver hérna sem veit hvernig laukur er ræktaður? Endilega segið mér allt sem þið vitið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok