Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Bakpokar (21 álit)

í Skátar fyrir 16 árum
Er búin að senda þennan þráð á tvö önnur áhugamál, og ætla að reyna hér líka. Ég er að fara í hálfgert bakpokaferðalag í sumar. Ég verð ekki endalaust á ferðinni, verð í fimm vikur og stoppa í um viku á hverjum stað. Mig vantar þá almennilega tösku, og held að svona týpískur túristabakpoki væri þá bestur. En þar sem ég á örugglega aldrei eftir að nota tuðruna eftir þessa ferð, vantar mig ekki eitthvað rándýrt sem á að duga í 20 ár. Einhverjar góðar hugmyndir? Má ekki kosta of mikið, og...

Bakpokaferðalög (13 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum
Ég er að fara í hálfgert bakpokaferðalag í sumar. Ég verð ekki endalaust á ferðinni, verð í fimm vikur og stoppa í um viku á hverjum stað. Mig vantar þá almennilega tösku, og held að svona týpískur túristabakpoki væri þá bestur. En þar sem ég á örugglega aldrei eftir að nota tuðruna eftir þessa ferð, vantar mig ekki eitthvað rándýrt sem á að duga í 20 ár. Einhverjar góðar hugmyndir? Má ekki kosta of mikið, og verður að vera sirka 65-75l. Þeir einu sem ég hef fundið hingað til eru eitthvað...

Bókasala? (8 álit)

í Bækur fyrir 16 árum
Hvar get ég selt notaðar bækur? Ég hef þurft að kaupa svo mikið af skáldsögum fyrir skólann, sem ég hef svo lesið bara einu sinni. Er engin verslun sem tekur við notuðum, vel förnum bókum?

Bakpokaferðalög (1 álit)

í Ferðalög fyrir 16 árum
Ég er að fara í hálfgert bakpokaferðalag í sumar. Ég verð ekki endalaust á ferðinni, verð í fimm vikur og stoppa í um viku á hverjum stað. Mig vantar þá almennilega tösku, og held að svona týpískur túristabakpoki væri þá bestur. En þar sem ég á örugglega aldrei eftir að nota tuðruna eftir þessa ferð, vantar mig ekki eitthvað rándýrt sem á að duga í 20 ár. Einhverjar góðar hugmyndir? Má ekki kosta of mikið, og verður að vera sirka 65-75l. Þeir einu sem ég hef fundið hingað til eru eitthvað...

Hundur sem lítur út eins og ísbjörn (17 álit)

í Hundar fyrir 16 árum
Hvað heitir sú tegund? Sætir, stórir hundar, virðast við fyrstu sýn vera ísbirnir.

Opna læstan bíl? (19 álit)

í Bílar fyrir 16 árum
Lyklarnir læstust inní bílnum og aukalyklarnir eru hinum megin á landinu. Löggan gaf mér símanúmer hjá einhverjum sem er að opna bíla, en hann skellti bara á mig. Góð ráð óskast.

Trukkamótmælin (187 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 1 mánuði
Eruð þið með eða á móti þessum götublokkeringum? Og veit einhver hvort maður fái skróp í skólann ef maður er fastur í umferðarteppunni og kemst ekki neitt? Hef heyrt að þeir ætli að loka Ártúnsbrekkunni og eitthvað á háannatíma í fyrramálið.

Hvað er að gerast? (0 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 1 mánuði
Hvað er búið að vera að gerast síðustu vikurnar í grönnum? Er ekki með Stöð2 þessa dagana.

Hvað er að kagganum? (32 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 1 mánuði
Bíllinn minn er skrítinn, þegar ég stíg bensíngjöfina vel niður þá hikstar hann. Hann er fínn ef ég bara rétt tylli henni niður, en ég tek enga í spyrnu með því móti. Hvað er að?

Borga á reikning erlendis? (5 álit)

í Fjármál og viðskipti fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Hvernig fer ég að því að millifæra af íslenskum reikningi yfir á enskan bankareikning(í eigu englendings)? Er það eitthvað vesen?

Týndir útskriftarnemar (39 álit)

í Skóli fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Eru einhverjir fleiri hérna sem eru að verða stúdentar í vor og vita ekkert hvað þeir eiga að gera af sér? Mér finnst allir vera svo vissir um framtíðina og þess háttar, og ég er algjörlega tóm. Ég veit ekki hvað ég á að gera í haust, ég veit ekki hvort ég ætla að fara í skóla eða í hvaða skóla ég ætti að fara og læra hvað… eða hvort ég ætti bara að byrja á að vinna, en ég veit ekki einusinni hvar ég ætla að vinna í sumar eða hvar ég fengi vinnu sem ég væri til í að vinna í fullu starfi. Ég...

Ofsótt? (52 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Það er einhver kelling í Grindavík alltaf að hringja í mig og anda í símann, og ég sé oft missed calls frá henni og eitthvað. Hvað á ég að gera? Ég er búin að prófa að hringja til baka og biðja hana að hætta þessu (hæfilega kurteislega) en það gengur ekki. Frumlegar hugmyndir óskast.

Ertu heimilislaus? (3 álit)

í Heimilið fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Mig vantar sambýling sem fyrst, bý í sætu tvíbýlishúsi í 104, allt til alls, 45þús á mánuði. Ég kann að elda. Verður að vera sæmilega heill á geði. Upplýsingar í skilaboðum. Bætt við 22. febrúar 2008 - 02:27 Má eyða þessu :D

Surface (3 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Er hægt að fá surface hér einhverstaðar?

Bóksala stúdenta? (8 álit)

í Skóli fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Hvar er hún eiginlega? Það er búið að færa hana og ég finn hana ekki. Þessi mynd á síðunni segir mér ekki neitt.

Septum lokkar (9 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hvar get ég keypt flotta septum lokka á netinu? Og þá meina ég með blingi og þess háttar. Hve stór eru annars þessi týpísku septum göt? 14g?

Mótmælin í ráðhúsinu (48 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hahahahaha, er einhver að horfa á þetta? Þetta er svo hallærislegt að ég fer hjá mér. Það virðist enginn á pöllunum vera yfir tvítugu, og rétt áðan var einhver strákur að öskra á Ólaf: “Þú ert ekki fokking borgarstjórinn, burt með þig!”. Þetta er rosalegt. Fór einhver Hugari á þetta?

Nýjar vörur (2 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hvenær koma nýjar vörur í þessar helstu tískuverslanir? Er að fá útbrot, er ekki búin að geta verslað neitt síðan fyrir jól. Eru komin ný föt í einhverjar búðir t.d. í kringlunni?

Celestia (7 álit)

í Geimvísindi fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Fyrir þá sem hafa áhuga á stjörnuskoðun án þess að hafa áhyggjur af skýjafari eða ekki nógu sterkum sjónaukum, þá er Celestia málið. Það er frítt stjörnuskoðunarforrit þar sem maður getur ferðast um alheiminn og séð stjörnuþokur, stjörnumerki, sótt upplýsingar um pláneturnar og aðrar stjörnur og ýmislegt þess háttar. Tær snilld. http://www.shatters.net/celestia/

Septum gat (9 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hvenær má skipta um lokk í septum gati?

Bassi + magnari til sölu (3 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Rosa sætur og rauður Washburn xb120 bassi og Ashdown 30w bassamagnari til sölu. 20þús kjell á hvorn. Sendið skilaboð, vel með farnar og sálarmiklar græjur.

Stjörnumyrkvi (4 álit)

í Geimvísindi fyrir 16 árum, 4 mánuðum
http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2007/12/22/marsmyrkvi_a_adfangadag/ Bendi áhugasömum á þetta.

Opnunartími um jólin? (6 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Veit einhver hvernig opnunartíminn verður á Tattoo og skart um jólin? Verða þau með opið á Þorláksmessu t.d.? Ég verð 18 á böggandi tíma og er búin að bíða nógu lengi.

Vesen (4 álit)

í Windows fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Ég var að fá mér nýja tölvu, en ég kemst ekki á netið í henni. Þegar ég ætla að láta hana leita að þráðlausa netinu kemur bara eitthvað “Windows could not configure his wireless network blabla”. Hvernig get ég reddað þessu? sdfsdfsdf Og svo þegar ég ætla að tengja flakkarann við nýju tölvuna frýs hún. Hvað er málið með það? Hjálp plís.

Tvö vandamál (24 álit)

í Vélbúnaður fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Ég var að fá mér nýja tölvu, en ég kemst ekki á netið í henni. Þegar ég ætla að láta hana leita að þráðlausa netinu kemur bara eitthvað “Windows could not configure his wireless network blabla”. Hvernig get ég reddað þessu? Og svo þegar ég ætla að tengja flakkarann við nýju tölvuna frýs hún. Hvað er málið með það? Hjálp plís.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok