Hvað er að asna bílaútvarpinu mínu? Þegar ég starta bílnum kviknar á því eins og venjulega, en svo slökknar bara eftir 6 sekúndur. Þá ýti ég á útvarpstakkann og þá kviknar á því aftur í sex sekúndur, en slökknar svo aftur.

Dagurinn verður alveg ómögulegur ef ég hlusta ekki á Zúúber á morgnana, hvað er hægt að gera í þessu? Og fer ég á venjulegt verkstæði til að tékka á þessu, eða til rafvirkja eða einhvers svoleiðis?