Annað nöldrið mitt í dag. Það er brjálað rok. 20 m/s, og fer örugglega upp undir 30 í hviðum. Gluggahliðin á íbúðinni minni snýr beint í suður á móti vindi, og það hristist allt hérna og geðveik læti í vindinum. Ég á aldrei eftir að geta sofið í nótt. Ég og vinkona mín skruppum út í sjoppu áðan, og það var fáránlegt. Ég fann bílinn hristast, og bjóst í alvörunni við því að hann myndi takast á loft. Svo var nánast ómögulegt að opna dyrnar á bílnum, maður sá aðrar bílhurðir fjúka upp og var að...