Vandamálið er sá að svhs í scart snúrurnar sem allar tölvubúðirnar pranga inn á mann eru ekki með svhs-composite decoder. Íhlutir, í Skipholti 17, selja slíka decodera og mig minnir að með svhs-snúru, decoder, hljóðsnúru og breytistykki fyrir scart hafi þetta kostað um 2000 kall. Ég var búinn að reyna þetta lengi með ýmsum kortum og sjónvörpum og fékk alltaf svarthvíta mynd áður en ég fékk þennan decoder. Eftir að ég fékk hann virkar þetta eins og í sögu.