Sælir félagar, hann afi minn er ættfræðigúru og er tiltölulega nýbuinn að fá sér nýja tölvu. Hann var með öll skjölin sín á gömlu word perfect. Hann gat opnað þau þar til nýlega að tölvann fór í smávægilega viðgerð. Og núna þegar reynt er að opna gömlu word perfect file-ana kemur “word cannot start the converter WPFT532.cnv”. Hann er með windows XP og allt annað í góðu lagi. Ég vona að þið getið leyst þetta vandamál fyrir gamla kallinn :)<br><br>Kveðja -> Benni - BeZe