Ef þú skilur ekki enn hvað lokunarhraði eða shutterspeed er þá er skal ég gera eina tilraun til að útskýra það. Á myndavélinni er gat, þetta gat er alltaf lokað nema þegar þú tekur mynd, þá opnast það og ljósið sem er fyrir framan myndavélina kemst inn og filman verður fyrir því. Shutterspeed er því hversu lengi gatið á vélinni er opið, ef þú tekur mynd í lítilli birtu á t.d. 1/200 þá verður myndin líklega bara alveg svört, ljósið nær ekki að hafa áhrif á filmuna, vegna þess að gatið...