Já ég skil , þetta er alltaf alveg rosalega erfitt. En oft eru bestu samböndin þau sem byrja með mjög góðri vináttu, enda er makinn manns ekkert annað en besti vinur manns. Ég tók svona áhættu sjálf, sagði vini mínum að ég væri hrifin af honum. Fyrst vildi hann mig ekki og það var rosalega vandræðalegt að hitta hann alltaf í skólanum, en svo var ég svo helvíti þrjósk að ég náði honum að lokum;) Hefði aldrei gerst ef ég hefði ekki sagt eitthvað…