Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Vampírur í tísku

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég hef dýrkað vampírur síðan ég var patti er einmitt að spila Vampire-The masquarade í annað sinn núna, hann rokkar feitt!!

Re: The Exorcist

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég verða að segja að mér fannst Exorcist ekkert spes þegar ég sá hana, kannski kominn tími til að sjá hana aftur, en Omen serían er ekkert nema snilld.

Re: Episode 1 barnaleg?

í Sci-Fi fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég verð að setja inn mitt álit á myndinni þar sem ég dýrka Star Wars óhóflega mikið. Það sem ég hafði á móti Phantom menace er: Í byrjuninni koma einhver Battle-droids sem bæði líta út og akta miklu fullkomnari en þau droids í 4,5,6 Lightsabre-in eru miklu minni og meira compact en í 4,5,6(fyrir utan tvöfalda sverðið) Darth maul kom svo lítið fram að það var skammarlegt, mér finnst hann persónulega einn flottasti vondi kall sem hefur komið fram í myndum. (Smá innskot, ég var í London rétt...

Re: hvað er svona slæmt?

í Dulspeki fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Það er stór munur á draugum og öndum(ekki brabra)í fyrsta lagi. Draugar eru framliðið fólk sem í flestum tilvikum á eftir að gera eitthvað hér og það getur verið hvað sem er, eða leysa eitthvað eða whatever og geta í rauninni ekki gert neitt nema reynt að ná sambandi við fólk og það getur verið þokkalega creepy, sérstaklega ef fólk er hrætt við þá, en þetta hryllingsmynda kjaftæði er nákvæmlega það KJAFTÆÐI. (Ég er samt mikill hryllingsmynda aðdáandi) Andar illir eða góðir eru EKKI dautt...

Re: Svipta menn tóbakssöluleyfi?

í Deiglan fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Auðvitað á að svipta fólk leyfi ef það er að brjóta lögin er það einhver spurning? En í sambandi við þessar ógurlegu umræður sem eru í gangi þá vitum við öll að við reykingafólk erum að drepa okkur hægt bæði líkamlega og fjárhagslega en við höfum rétt til þess það er alveg á hreinu en við höfum náttúrulega ekki rétt til að vera drepa aðra hægt með þessu líka, það er bara um að gera að vera kurteis þegar maður er með fólki sem ekki reykir og spyrja hvort því sé sama hvort maður reyki, ef það...

Re: Bubbi vs fíkniefna.

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Þetta Bubba-Thing hjá þeim sýnist mér ekkert vera að gera sig. Ímyndið ykkur ef þið væruð(og sum eru kannski)14-XX ára (XX þar sem aldurinn er mismunandi) og byrjið að reykja stuð munduð þið taka mark á Bubba? Ég bara spyr, Bubbi meinar örugglega vel og allt það en nær hann að koma fram skilaboðunum sem þurfa að koma fram, og með þessu lagi sem kemur í endann? mig langar að brjóta sjónvarpið þegar það kemur. Ég er sjálfur búinn að taka langan fyllerís/reykingapakka og prófaði ýmsilegt annað,...

Re: Bíómiða Verð

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Þetta er tóm steypa, ég var einmitt að komast í þá pælingu að fara að hanga bara í bíó, Djöfuls svekk……….!

Re: Halló Simpsonsaðdáendur!

í Teiknimyndir fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Öll senan þar sem Homer er að taka inntökuprófið í Stonecutters sérstaklega þar sem hann er látinn stökkva af pallinum, brýtur gólfið, fer í gegnum nokkrar hæðir lendir og segir “I think I´ve got to do it again, my blinfold came off” Og svo þegar hann er dragandi The stone of shame á eftir sér þeir sjá fæðingarblettinn og sjá að hann er The chosen one og segja "Remove the stone of shame(stór steinn)-(smá þögn)–and attach the stone of victory!(ennþá stærri steinn) Geðveik sena

Re: Hresstu uppá magnarann þinn!

í Hljóðfæri fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Þetta er soldið sniðugt ég reyndar tími ekki marshallnum mínum(mjög gamall og lasinn) en ég er með plan á gamlan hippagítar sem ég á í pörtum, Fixa hann upp aftur og klæða hann í fjólublátt flauel :0)

Re: Er Metal að verða að söluvöru?

í Metall fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Akkuru eruð þið að pirra ykkur á´essu hlustið bara frekar á almennilegan metal GO SCANDINAVIAN! Í alvöru þar finniði almennilegan metal, In Flames, At the gates, Aeternus…………..os.frv Það vita allir að Halta kexið er sellout hórur og þetta bandaríska metal það eru örfá bönd sem hægt er að hlusta á og þá helst gömlu kempurnar Slayer, Morbid Angel, Deicide….ETC.ETC. Samt er Industrial metal grúví: Ministry, Skinny puppy, My life with the thrill kill kult og fleiri, það er náttúrulega hægt að...

Re: Slayer und pantera

í Metall fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Hvað meinaru kjánalegur !!!!!!!!!!!

Re: Merking drauma

í Dulspeki fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Allir draumar þýða eitthvað. Sumir sálfræðingar tala um að þetta sé heilinn að vinna úr upplýsingum og svoleiðis, en mann dreymir víst að meðaltali svona 15 drauma á hverri nótt án þess að muna eftir því. Með það að dreyma fyrirboða þá af eigin reynslu get ág sagt það að ég er berdreyminn og mig hefur oft dreymt eitthvað eða einhverja aðstöðu og síðan allt í einu gerst það sem mig dreymdi.

Re: Eru draugar uppspretta ýmindunaraflsins?

í Dulspeki fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Draugar eru ekki rugl ég er alveg 100 á því en í flestum tilvikum eru þetta fólk sem er dáið og fattar það ekki alveg eða þá eru með einhver issues sem þau eiga eftir að leysa. Þetta er mjög fyndið yfirleitt, þetta kemur mjög oft fyrir mig.

Re: Framhald úr Mythology...

í Spenna / Drama fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Reyndar stjaksetti hann þá lifandi og kertastjakar eru of litlir fyrir það. Hann var greifi í Rúmeníu og hét Vlad Tepes

Re: Artch spilar á Wacken tónlistarhátíðinni

í Metall fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Ertu ekki að grínast ég hef ekkert heyrt um þetta en ég er sáttur við þetta kallinn er frændi minn og hefur ekkert látið út úr sér við okkur en þetta er algjör snilld ef þetta er rétt :)

Re: Battlefield Earth

í Kvikmyndir fyrir 25 árum, 2 mánuðum
það eina sem ég get sagt um þessa mynd er að þetta er sennilega súrasta mynd sem ég hef séð lengi (og sama segir öll fjölskyldan) og í rauninni er allt sem viðkemur L.Ron Hubbard að mínu áliti mjög súrt

Re: Slipknot = Kizz

í Metall fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Það ætti að taka þig og kroppa úr þér hjartað með brotinni trésleif Bæði Kiss og Slipknot rokka tuddavel og ef þú fílar það ekki, EKKI HLUSTA Á ÞÁ

Re: Coldplay

í Metall fyrir 25 árum, 8 mánuðum
Hvað er umfjöllun um Coldplay að gera inn á metall? þetta er bara súrt og ekkert annað eitthvað britpopp inn á þessum lista. meiri metal
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok