Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Fyrir hvað fá prestar laun?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Til hvers ertu í Þjóðkirkjunni og ætlar að ferma dóttur þína ef þér leiðist svona “rausið” og “jarmið” í prestinum? Rosalega fara ég taugarnar á mér svona hræsnarar sem nota þjónustu eins og giftingar, skírnir og útfarir eingöngu vegna þess að það er vani en hafa í raun ekkert að gera með að vera skráðir í kirkjuna (ég geri mér grein fyrir að ég er að tala um 80% þjóðarinnar). Hvenær ætlar fólk að átta sig á því að það þarf ekki að vera skráð í kirkjuna og taka þátt í þessu mumbo-jumbo ef...

Re: Að vera samkynhneigður árið 2003?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
“Börn eru illustu skepnur jarðar þar sem þau hafa enga samvisku, og þau halda fordómum lengur en þeir fullorðnu.” Ertu eitthvað bitur? Börn endurspegla nákvæmlega það sem fyrir þeim er haft. Það sem foreldrarnir þora ekki að segja úti í samfélaginu vegna pólitískrar rétthugsunar segja þau heima við matarborðið, og börnin taka upp sömu skoðanir og flagga þeim opinskátt þangað til þeim er bent á að halda þeim út af fyrir sig. Það má vel vera að fyrirlitning á samkynhneigð sé meðfædd, þar sem...

Re: Bannið drepur

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Vímuefni já. Sömuleiðis eru áfengi, tóbak og koffein vímuefni, og jafnvel súkkulaði líka. Vímuefni þýðir aðeins efni sem veldur (sælu)vímu. Þetta er ekki eins neikvætt orð og fíkniefni eða eiturlyf, en fíkniefni á við efni sem valda fíkn og eiturlyf á væntanlega við efni sem eru eitruð. Það hefur ekki enn tekist að sanna að kannabis valdi líkamlegri fíkn, svo að orðið fíkniefni er eiginlega rangnefni. Hins vegar þekkja t.d. flestir kaffidrykkjumenn fráhvarfseinkenni af kaffiskorti, svo að...

Re: Húsgagnahönnun oflr.

í Heimilið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst bara athyglisvert að þú skulir leggja svona mikla áherslu á að hlutir séu óvenjulegir en setjir svo mynd af svona íhaldssömum og venjulegum húsgögnum.

Re: Húsgagnahönnun oflr.

í Heimilið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Finnst þér þetta flott húsgögn á þessari mynd sem þú sendir með?

Re: Könnun...

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Já, heimskuleg könnun. Ég stilli oftast á Radíó Reykjavík, enda langskásta stöðin tónlistarlega séð.

Re: Hvað er svona merkilegt við okkur?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
ég meinti tískuþræll á 9. áratugnum (80s).

Re: Hvað er svona merkilegt við okkur?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég var ekkert að segja að það væri e-ð merkilegt við okkar kynslóð. Ég er bara feginn að hafa sloppið við að vera tískuþræll á 8. áratugnum. Reyndar skoðaði ég Bravo blöð og hlustaði á Wham og Duran Duran og “hélt með” Wham (oj, oj!). Ég var kannski aðeins á undan flestum hinum 6 ára krökkunum í tónlistarvali, en þú hefur greinilega verið úti að aka (eða moka)! 35 ára hvað? Mér finnst fjölhyggja tíunda áratugarins og nútímans skemmtileg, og það að heil kynslóð skuli ekki hafa neinn karakter...

Re: X-KYNSLÓÐIN

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
hmmm…það getur svo sem vel verið að við séum X-kynslóðin líka, eða á mörkunum. Mér finnst X-kynslóðin vera kynslóð þeirra sem voru unglingar á 9. áratugnum og stigu sín fyrstu skref á eigin spýtur í byrjun 10. áratugarins. Þetta fólk er nær þrítugu en tvítugu, eða í kringum þrítugt. Ætli Símabófarnir séu ekki ágætis dæmi um þessa kynslóð.

Re: Freud og Jung

í Dulspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mjög góð grein um afar áhugaverða sálfræðinga. Ég er sammála þér, það er allt of mikið gert úr Freud og of lítið talað um Jung í menningu okkar. Jung var að mörgu leyti með mun áhugaverðari kenningar.

Re: X-KYNSLÓÐIN

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Speak for yourself! Frekar glötuð kynslóð ef þú spyrð mig, hugsjónalaus og yfirborðskennd. Sem betur fer er ég aðeins yngri, Y-kynslóðin eða svo… Ég ólst upp við það nákvæmlega sama, en sem betur fer var ég ekki alveg kominn með meðvitund á hinum hræðilega 9. áratug þar sem yfirborðsmennska og efnishyggja náði hámarki. For crying out loud, þið rifust um hvort Duran Duran eða Wham væri betri!

Re: Hjálp, Magni minn er enn týndur!!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Aðalvideóleigan er á Klapparstíg 32 Veit ekkert um þennan kött. Hann fór í frekar mikið í taugarnar á mér. Eitthvað kvendi hélt þrusuræðu yfir mér um að ég mætti ekki opna hurðina svo hann kæmist út, hann ætti að fara á spítala eða e-ð. Þegar ég brosti að þessu sagði hún með fyrirlitningarsvip; “já þér finnst þetta fyndið?”. Ég sagði að mér fyndist ekkert fyndið að pína saklausan viðskiptavin með kattarofnæmi til þess að anda að sér kattahárum. Hvernig fyndist fólki ef ég hleypti út táragasi...

Re: Hjálp, Magni minn er enn týndur!!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er þó ekki strokukötturinn sem var haldið lokuðum í Aðalvideóleigunni í gær? Hann var a.m.k. alveg eins á litinn.

Re: Logga inn - án músar

í Hugi fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvernig notar þú internetið án músar?

Re: Hreint HVÍTT land !

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Vefstjóri! Skora á þig að stöðva þennan mann áður en hann gengur lengra. Nýnasistar geta stofnað sínar eigin spjallrásir þar sem þeir ausa úr sér svona geðveiki. Hugi.is á ekki að láta bendla sig við svona.

Re: Klikkaður softsynthi?

í Danstónlist fyrir 22 árum, 11 mánuðum
töff<br><br><a href="http://www.kallisti.tk">kallisti.tk</a

Re: Gnostísismi í Matrix

í Dulspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Gnostísismi var mjög mikið undir áhrifum af kenningum Platóns, og Nietzsche var undir áhrifum af gnostísisma, svo þetta tengist allt saman. Auðvitað er þessi fullkomnari guð og fullkomnari andlegi heimur ekkert annað en hugmyndaheimur Platóns.<br><br><a href="http://www.kallisti.tk">kallisti.tk</a

Re: Matrix trílógían og gnostísismi

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Skemmtileg greining hjá þér, Flatormur :)

Re: Fordómar gegn

í Dulspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér þykir þú full fordómafull út í dóphausa og “nýaldarfrík”, í þessari grein gegn fordómum. Reyndar sé ekki mikið af þessum steríótýpísku andlegu týpum þínum. Mér hefur fundist raunin vera að þetta séu flestallt auðtrúa og utangarðs unglingsstelpur sem hafa horft of mikið á Charmed og The Craft, flæktar í eigin hugarheimi einar heima hjá sér, en langar að magna ástarseið til þess að vinsælasti strákurinn taki eftir þeim, sem hann gerir aldrei. Nú eða utangarðs strákar sem finnst voða töff...

Re: Matrix trílógían og gnostísismi

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Reyndar hef ég ekki sérstakan áhuga á þessum myndum nema fyrir þennan dulda boðskap og tilvísanir sem þær innihalda. Mér finnst þetta góð tilraun til þess að koma tiltölulega óaðgengilegum hugmyndum á framfæri við stóran áhorfendahóp á aðgengilegan hátt. Skemmtilegt til þess að hugsa að heilu kynslóðirnar alist upp við hugmyndir sem leynireglur og nokkrir furðufuglar veltu fyrir sér fyrir luktum dyrum í tvö þúsund ár, af ótta við ofsóknir rétttrúnaðarmanna kirkjunnar. En mér sýnist að þú...

Re: Matrix trílógían og gnostísismi

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú týndi ég þér alveg. Skil ekki hvað þú ert að fara… Augun? Wtf? Þú fellir gífurlega marga dóma, sem eru engan veginn sjálfgefnir. Reynum að sundurliða þetta: “Það sem ég, persónulega, hef á móti svona hugmyndum líka er að þær virka ekki. Þær eru ekki til neins góðs fyrir þann sem trúir þeim, og það er það sem ég meina kannski með ”andleg sjálfsfróun“, eitthvað sem skilar engum árangri, eitthvað meðalmennskulegt og að vissu leyti heimskulegt, eitthvað óskapandi.” 1) Hvernig veistu að þær...

Re: Matrix trílógían og gnostísismi

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ok, addressan á þessa blessuðu grein er svona: http://www.killingthebuddha.com/critical_devotion/gnosi s.htm , nema að það er ekki bil á milli “gnosi” og “s.htm”, heldur á það að vera samfellt…

Re: Matrix trílógían og gnostísismi

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
andsk…þetta virkar ekki

Re: Matrix trílógían og gnostísismi

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nei, svona: http://www.killingthebuddha.com/critical_devotion/gnosi s.htm

Re: Matrix trílógían og gnostísismi

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
addressan á víst að vera svona: http://www.killingthebuddha.com/critical_devotion/gnosi s.htm Því miður er ekki hægt að gera tengla hérna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok