Eins og allir vita þá eru til síður þar sem fólk þarf að borga fyrir aðgang að efni síðunnar. Ég myndi aldrei fara að borga fyrir aðgang að síðu, þá þyrfti hún að innihalda efni sem er ekki til á netinu í dag. Allt sem til er á netinu í dag er hægt að fá ókeypis(fyrir utan vörur í vefverslunum). Ef cnet myndi rukka fyrir download og aðra þjónustu þá myndi aðsóknin snarminnka að vefnum, sem myndi kosta það að það eru færri “product review”, færri sem lesa upplýsingar á vefnum o.s.fr. Ég las í...