Enn eitt sem ég vil benda á. Hvað með þessa krakka sem ekki fóru í muggaskóla? Ég meina hvar lærðu þau t.d. að lesa? Og svo galdramenn í fullu starfi. Hvað gera þau við krakkana á meðan? Og svo líka, hvernig er hægt að reka St Mungo og Galdramálaráðumeytið ef það eru ekki skattar? Ef það eru til skattar þá býst ég við að það séu til skattaskýrslur. Þarf ekki einhverja stærðfræðikunnáttu til að ganga frá skattaskýrslu? Talnagaldrar er valfag. Hvað með þá sem ekki völdu talnagaldra?