Ég veit að flestir vita um þennan leik en ég ætla að fjalla aðeins meira um hann(hehe). Í Sims2 er hægt að hafa fjórar hæðir, og búa upp á fjalli. Það er hægt að fara niður í bæ eins og í dýraleiknum og Hot date. En það er samt ekki hægt að kaupa dýr.
Það er hægt að hafa miklu meira í persónuleika og það geta líka ennþá verið átta í fjölskyldu. En það er hægt að búa til pínulítil börn, svona aðeins eldri, krakka, unglinga, fullorðna og gamla.Gamlar konur og unglingsstelpur geta ekki eignast börn og unglingstrákur getur ekki elskað fullorðna konu. En gamall kall getur eignast barn með fullorðni konu. Ef það eru slagsmál á heimilinu fer enginn í burtu -I leave for good-(sem betur fer:P)!
Og ef barn á vonda æsku fer það á barnaheimili, það er hægt að ættleiða börn og eignast börn í fleiri rúmum en hjartarúminu(þið munið úr Sims1), semsagt öllum rúmum. Unglingar geta hlaupið að heiman og fólk dáið, of gamalt eða drukkna, fá eldingu í sig eða brenna.(held ég, man ekki fleiri dauða). Ef þú kaupir lóð verður ekki þetta sama óþolandi gráa í kring. Það er svo óttalega óþægilegt að ég get ekki lýst því! En, alla vega. Sims2 er í þrívídd. Það eiga auðvitað að koma út aukapakkar, en kannski verður það þannig að við getum farið með Simsunum í skólann og vinnuna;)! Ef leikurinn selst vel byrja þeir strax(kannski)á Sims3 og svo kannski 4 og 5 o.sv.fr. (p.s. man ekki meira)



Ég myndi vilja að Sims3 væri svona:
Það væri hægt að fara til útlanda og velja sér þá land. Svo væri hægt að fara með litlu krakkana í leikskólann. Og líka í skólann og vinnuna. Gamla fólkið færi á elliheimili og væri komið á eftirlaun, eða bara enn í fullu fjöri eins og amma mín;).
Allir gætu farið í hárgreiðslu, litað hárið o.sv.fr. Foreldrar gætu keypt gæludýr handa krökkunum og öfugt:). Það væri hægt að ráða hvar maður byggi, annað hvort sveit, borg eða eitthvað annað.
Það væri hægt að kaupa fullt af dóti handa krökkunum og líka skóladót. Það væri hægt að keyra bíl, og búa í blokk og allskonar öðruvísi húsum, meira að segja hverfum!
(ef einhver vill skrifa meira um sinn draumasims skrifið það í skoðanir)

Jæja, þetta verður vonandi mín fyrsta GREIN inná Sims áhugamálinu.






SIMS ER BESTI LEIKURINN!!!!!!!!!!!!!!!!!:D:D:D:D:D:D:D::D:D:D:D:D
Nothing will come from nothing, you know what they say!