Þegar ég var uþb 5 ára (+/-) þá fór ég með mömmu, systur hennar og syni á Galdrakarlinn í Oz í Hlégarði (sem var leikhús þá). Veistu að ég hef aldrei á æfi minni verið jafnhrædd. Vonda nornin kom nefnilega út í salinn og ég var dauðhrædd um að hún myndi taka mig. En þetta var náttúrulega rosaleg upplifun. Þegar ég var enn yngri fór ég á Egner leikrit (Dýrin í Hálsaskógi, Kardimommubær o.fl.) Þvílík upplifun, öll börn ættu að fá að fara í leikhús. Það ætti næstum að vera í barnasáttmála...