Jæja þá er 3. þáttur í hinum geysivinsæla Survivor lokið og hér fyrir neðan ætla ég að tala um hann. Ég vil vara þá við sem sáu ekki þáttinn um að stoppa að lesa ef þið viljið ekki vita neitt hvað gerðist en ef þið nennið ekki að horfa á þáttinn getið þið séð mikilvægustu atriðin hér fyrir neðan


Í öðrum þættinum þá vann Rotu kafaratækin og þegar John var í sjónum að kafa eftir einhverju ætilegu þá stakk hann sig á ígulkeri og til að losna við eitrið þá þurfti einhver að pissa á hendina á honum þar sem hann stakk sig. Og þá kom Kathy, girti niðrum sig, setti hendina á John undir klofið og pissaði á hann.
Ekki vantaði slysin í þættinum því að þegar hann Robert var að bera einhverjar spýtur þá missti hann þær oná stórutánna á sér og þá kom John og byrjaði að hreinsa sárið og eitthvað en ég sá ekki nákvæmlega hvað hann gerði því að ég gat ekki horft á þetta því þetta var too much 4 me.
Svo skeði annað slys fyrir John, þegar hann var í vatninu þá beit áll hann í puttann og braut nöglina og eitthvað þvílíkt. Hann var án efa mesti hrakfallabálkurinn í þessum þætti.
Svo í keppninni þá var barist um teppi, kodda og 3 lampa. Og það kom engum á óvart, Rotu vann enn einu sinni.
Og í keppninni um idolið þá vann Rotu líka, DAMN THOSE PEOPLE, og á þinginu var Hunter valinn og það var án efa það heimskulegasta sem hægt var að gera því hann er sterkastur og ef hann væri ekki þarna væri Maraamu varla búinn að búa til skýlið, það hefði frekar átt að vota Sarah út.
En hvað um það, ég vona að Maraamu vinni næst því þau eru búin að tapa 6 sinnum, held ég, og hafa aldrei unnið. Vona að þau vinni næst.