Eins og ég greyndi frá í grein minni sem var flutt á korka en hún heitir Liz Hurley fær meðlag eða eitthvað svipað en svona hljóðar hún.

Fyrirsætan og leikkonan breska, Elizabeth Hurley hefur samið við bandaríska kvikmyndaframleiðandann Steve Bing um að hún fái meðlag upp á 14 milljónir króna á ári með syni þeirra sem er núna 8 mánaða gamall en þetta samkomulag náðist um þetta fyrir dómi í vikunni.

Í nóvember á seinasta ári sagði Hurley að Bing væri faðirinn en Bing sagði að það væri ekki rétt en það þurfti því að láta DNA-próf ráða um það hvort hann væri faðirinn og kom þá í ljós að hann væri faðir sonar Hurley.

Bing hefur framleitt kvikmyndi í Hollywood og skrifað sjónvarpsþætti en hann hefur einnig erft mikil auðæfi.
Hurley hefur leikið í mörgum kvikmyndum og má þá nefna meðal annars Austin powers og Serving Sara

….Þessi grein er ekki alveg rétt því að það er þannig að Steve féllst á að greiða Liz meðlagið en hún hefur nú hafnað því í gær.

„Ég hef alltaf gert Steve Bing, sem er faðir sonar mín Damians, ljóst að ég vil ekki þiggja neina fjárhagslega aðstoð frá honum. En í kjölfar dómstólameðferðar sem fór fram að kröfu hans og þrátt fyrir andstöðu mína, hefur komið í ljós að ekki er hægt að koma í veg fyrir að einhver reyni að gefa öðrum fé. En til allrar hamingju er einnig hægt að hafna slíku. Það hef ég gert,“ sagði Hurley í yfirlýsingunni.

Það segir einnig að Bing telji meðlagið eða þessar fjórtán milljónir gríðarlega fjárupphæð og hún meti örlæti hans í garð sonar síns. „En afstaða mín er enn sú sama. Fjárins er hvorki þörf né er það vel séð. Damien og ég spjörum okkur ágætlega ein.”

Kv. Hallat