Verið er að skipuleggja auglýsingaherferð á vegum tískuhúss Marc Jacobs og hefur fyrirtækið leitað til Ryder, sem var íklædd fötum frá fyrirtækinu á meðan réttarhöldum yfir henni stóð. Ryder var fundin sek um stórfellt búðahnupl og dæmt til skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Robert Duffy, forstjóri Marc Jacobs segir að fyrirtækið vilji gjarnan njóta starfskrafta Ryders. „Hún hefur verið mjög góður viðskiptavinur hjá okkur.“ Donny Deutsch, sérfræðingur í auglýsingum, bætti við: „Í okkar heimi er gott að vera illræmdur.”