Jæja, við erum að flytja um mánaðarmótin en erum að mála íbúðina núna. Ég var að hugsa um að mála herbergið blátt að ósk drengsins en var að hugsa, því ég á stelpu líka og verður hún með honum í herbergi, hvort það sé ráðlegt eða hvort það sé hægt að setja borða sem myndi gera herbergið hlutlaust. Ég fór og skoðaði borða en finn bara annað hvort ekta stráka eða ekta stelpu borða og þeir sem eru hlutlausir eru svo baby legir.
Mig langar til að biðja ykkur um ráð, hvað á ég að gera?
Hvar finn ég búð með borðum sem hentar fyrir bæði?

Með von um góð svör
Lasarus