Gamla tíkin mín, 11 ára, er núna orðinn svo slök í beinunum að stundum eftir kærkominn svefn í slæmri stöðu þá verður hún stundum draghölt í jafnvel nokkra daga. Hafið þið orðið var við þetta hjá ykkar hundum?

Þetta er gerist reyndar sjaldan, álíka oft eins og hjá okkur mönnunum þegar við sofum illa á hendinni og verðum slappir í henni fyrir vikið.

Það er reyndar ansi spaugilegt þegar þetta gerist hjá henni. Hún skilur náttúrlega ekkert hvað sé núna að gerast, bara orðinn draghölt allt í einu og oftast lagast þetta reyndar yfir eina nótt, henni til mikillar undrunar og ánægju. Hún verður líka ansi sorgmæt þegar þetta stendur yfir. Þetta getur varið í 2 daga og þá er hún nánast lömuð og vill ekkert hreyfa sig.