Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Kommon!!!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég efast nú um að Írafár eða Birgitta fái stóran hluta af þessu þegar búið er að greiða fyrir kostnað og umbinn sinn hlut o.s.frv. Þetta kostar allt.

Re: HJÁLP!!!

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, ég er heldur alls ekki sammála því að gera þetta ekki við börn. Ég hef gert þetta við öll börnin mín og þau hafa einmitt koppavanist mjög fljótt, nema reyndar sá yngsti, hann fílar þetta bara vel. Veit ekki alveg hvað ég á að gera við hann. Tek það fram að ég er að grínast og ég á engin börn :P

Re: Stundatöflur og eldri nemendur á sama stigi!

í Skóli fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ok, það var ekki verið að nota það þegar ég var í framhaldsskóla og maður var oft með árekstra á einum tíma og eyður hér og þar. Einu sinni var ég með þrefaldan árekstur á einum tíma og mætti bara til skiptis en þegar próftaflan kom voru öll prófin á sama tíma líka :) Ég þurfti að taka tvö hvort eftir annað og eitt sem sjúkrapróf.

Re: Meira úrval að motorola símum

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Síminn: <a href="http://thjonusta.siminn.is/vefverslun/product.asp?dept%5Fid=10300&pf%5Fid=21194">http://thjonusta.siminn.is/vefverslun/product.asp?dept%5Fid=10300&pf%5Fid=21194</a> Hátækni: <a href="http://www.hataekni.is/motorola.html#t720">http://www.hataekni.is/motorola.html#t720</a> Annars þá finnst mér líklegt að í amerískum tónlistarmyndböndum sjáir þú síma fyrir amerískan markað sem eru á annarri tíðni en í evrópu. Stundum búa þeir til nokkurn veginn sömu týpuna fyrir báða markaði og...

Re: american idol :)

í Hugi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mér finnst einmitt skemmtilegast þegar þeir eru að hafa fyrstu prufurnar og fá allt þetta ruglaða fólk inn. Sumir sem ég gæti svarið að væru að grínast en greinilega trúir þetta fólk að það geti sungið, annars færi það varla að bíða í röð í 5 daga.

Re: Prag

í Ferðalög fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég veit ekki hvort það er hægt að kaupa eitthvað þar en ég veit um fleiri en einn sem hafa verið rændir í Prag þannig að best að vera ekki með mikinn pening á sér.

Re: Óhjálpsamir hugarar?

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mér finnst nú frekar pirrandi að sjá 100 pósta sem heita allir “HJÁÁÁÁÁLLLPPPP!!!” og maður veit í rauninni ekkert hvað fólkið er að biðja um hjálp við. Annars veit ég ekki um svona forrit fyrir þig en ef þú ert að endurhanna eldhúsið hjá þér, þá er ég að læra húsgagnasmíði og var einmitt að gera svona verkefni fyrir jól. Teiknaðu eldhúsið upp á rúðustrikað blað í einhverjum skala, jafnvel millimetrapappír ef þú ætlar að vera smart á þessu. Fáðu svo bækling frá einhverjum...

Re: Hvort finnst ykkur flottara..........

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef þú hefur rosa áhyggjur, þá var ég einu sinni að vinna með stelpu sem var 1.80 og hún sagðist hafa verið stoppuð þannig að hún hætti að vaxa. Hún sagði að læknir gæti fundið út úr þessu með einhverjum beinamælinum og ef hann sæi að þú endar í t.d. 2.10 og vilt ekki vera svo stór, þá geturðu látið stoppa vöxtinn. Annars var ég alltaf með þeim hæstu í bekknum uppí ca. 12 ára bekk og þá hætti ég að vaxa, líklega vegna óheilbrigðs lífernis, nei annars, veit ekki af hverju. Alla vega endaði ég...

Re: Flugferðir ódýrar????

í Ferðalög fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Nákvæmlega. Flugleiðir bjóða flugið á sama verði, bara á þessum leiðum. Hinn sauðarlegi Íslendingur segir þá “Nú, það er bara á sama verði. Ég hef nú alltaf flogið með Flugleiðum og svo fæ ég mat í vélinni og bíó og Saga Boutique sem ég fæ ekki hjá Iceland Express.” Ef allir hugsa svoleiðis halda allir áfram að fljúga með Flugleiðum og Iceland Express fær enga kúnna og þarf að hætta. Þá geta Flugleiðir hækkað verðið aftur. Fattarðu?

Re: Loftknúinn bíll

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sem þýðir að hann yrði bara ferlega góður í Danmörku þessi bíll :)

Re: Hvar er síminn minn?

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sá sem stal honum gæti líka verið búinn að selja hann.

Re: Hvar er síminn minn?

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Jafnvel þó þeir hefðu rakið hann þá hefur það frekar lítið að segja. Eina sem er hægt að fá með að rekja imei er að fá símanúmerið á kortinu sem er í símanum. Ef þjófurinn er ekki svo vitlaus að nota skráð númer, þá er ekkert hægt að gera nema hringja í hann og segja honum að skila símanum og þá getur hann bara farið og keypt sér nýtt símakort. Þú getur látið loka alveg á símann, þ.e. ef þú hefur imei númerið og stundum hafa þeir komið í leitirnar þannig að þeir hætta að virka þegar það er...

Re: Fullt af köttum

í Kettir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þú hefðir verið fljótari að gera clickable link á síðuna heldur en að skrifa að þú nenntir því ekki :P

Re: Sund í gagnfræðaskóla!!!

í Skóli fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Fer eftir því hvernig þú skilgreinir þjóðaríþrótt. Ef þjóðaríþrótt má ekki vera stunduð nema í einu landi, þá eru nú bara ansi fáar þjóðaríþróttir til í heiminum. Ef Danir t.d. tækju upp að fara að æfa glímuna okkar, væri hún þá ekki lengur okkar þjóðaríþrótt?

Re: Mun Íslandssími C (TAL) rúlla yfir SÍMANN

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þegar ég segi óstöðug fyrirtæki þá meina ég ný fyrirtæki sem hafa ekki fest sig í sessi og gætu þess vegna lagt upp laupana hvenær sem er. Síminn bara rúllar áfram sinn veg meðan ný fyrirtæki þurfa að byrja á því að leggja út fyrir öllum búnaði og síðan að hasla sér völl og reyna að ná í kúnna frá þeim sem fyrir eru.

Re: Mun Íslandssími C (TAL) rúlla yfir SÍMANN

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Síminn má vera dýrastur vegna þess að hann er elsta og traustasta fyrirtækið og margir velja það frekar en að nota fyrirtæki sem er nýrra og óstöðugra þó það sé ódýrara. Nýju fyrirtækin verða að vera ódýrari til að plata kúnna frá Símanum. Hins vegar hefur það lengi loðað við Símann að þjónustan þar hefur ekki verið til fyrirmyndar, enda voru þeir svo lengi með einokun að starfsfólkið var orðið vant því að geta hagað sér eins og það vildi því kúnninn gat hvort sem er ekki farið neitt annað....

Re: Ericsson T-200

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef þú ert að spá í þessum síma þá skaltu fara og fá að prófa hann í búðinni og sjá hvort þetta er hægt. Frændi minn keypti sér líka síma og var sagt að hann gæti skilað honum og fengið endurgreitt ef síminn væri í upprunalegum umbúðum og það væri innan ákveðið margra daga frá því hann keypti hann.

Re: Nögl..

í Heilsa fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Farðu bara til læknis. Heimilislæknirinn á að geta komið þér að samdægurs ef það er svona “neyðartilvik” :) Ef þú ert ekki með heimilislækni, þá bara heilsugæslustöð eða jafnvel slysó.

Re: Mengun

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég held líka að vandamálið í flestum þessara landa sé að einræðisherrar eða aðrir spilltir valdamenn hirða olíugróðann og þeim er náttúrulega alveg sama um alþýðuna. Ef allt stefnir í óefni, þá bara flýja þeir land með allan peninginn.

Re: Rauðhærðar kellingar...

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég hef einmitt kynnst nokkrum svona en svo þekki ég reyndar eina rauðhærða sem er skólasystir mín sem einmitt þvert á móti talar lágt og er mjög settleg þannig að þær eru ekki allar svona miklar brussur.

Re: Virðingarleysi gagnvart íslenskum stelpum

í Rómantík fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Íslenska þjóðin er bara svona ákaflega drátthög. Ekkert að því að sofa hjá öllum ef það er það sem fólk vill. Þeir sem hins vegar taka kynlíf alvarlega munu ekki bera virðingu fyrir þeim sem taka því eins og hverju öðru tómstundagamni og þeir sem stunda villt kynlíf um hverja helgi með hverjum sem er tilbúinn finnst líklega líka að liðið sem tekur þetta eitthvað alvarlega sé bara eitthvað heft eða teprulegt.

Re: Það var keyrt á Snældu mína....

í Kettir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég samhryggist. Grey Snælda. Vonandi hefur þetta tekið fljótt af. Hins vegar er ég líka sammála Zaluki, maður er alltaf að heyra um ketti sem er keyrt á og ketti sem týnast og ketti sem lokast inni einhvers staðar og svelta og ketti sem er jafnvel stolið. Ég horfi á litlu kisu mín liggja við ofninn og hlýja sér og ég get verið öruggur um að ekkert af þessu kemur fyrir hana því það lengsta sem hún fær að fara er útí glugga. Mér finnst að fólk ætti að spá aðeins í þessu.

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sagt er að Frakkar hafi byrjað að streyma þangað á 17. öld ásamt með slatta af Bretum og Þjóðverjum. Á 18. öld byrjuðu Bretar og Frakkar að berjast um yfirráð yfir nýlendunni og lauk með sigri Breta 1763. Þá voru þetta bara Breskar nýlendur. Kanada var hins vegar ekki stofnað fyrr en 1867 og þá voru fylkin Ontario, Quebec, Nova Scotia og New Brunswick í sambandinu. Svo bættust hin við smátt og smátt. Breska samveldið var síðan stofnað í kringum allar þessar fyrrum nýlendur sem fengu...

Re: Mengun

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég held ekki að olían verði búin eftir 20 ár, hún á eftir að í nokkra áratugi í viðbót. Tækni til að ná upp olíu er líka alltaf að batna. Ég er nokkuð viss um að þegar olían klárast verður komin tækni til að taka við. Vetnis- og gasfarartæki eru komin vel á veg sem og rafmagns. Í sambandi við mið-austurlönd, þá verða þeir bara að finna sér eitthvað annað að gera. Ef þeir eru framsýnir, þá gera þeir það, ef ekki, þá verður jú líklega hungursneyð.

Re: Mengun

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég sá einhvers staðar að það voru sett lög í Bandaríkjunum um hvað einkabílar mega eyða miklu bensíni en þau ná víst ekki yfir jeppa, vinnuvélar og slíkt. Nú þegar allir eru komnir á jeppa, þá mengar fólk miklu meira. Mengunin er nefnilega í réttu hlutfalli við bensíneyðsluna. Ástæður þess að fólk keyrir um á jeppa innanbæjar eru 3. Það er flott, ég sé betur (en enginn sér neitt fyrir honum), það er miklu öruggara (vegna þess að ég get keyrt eins og vitleysingur en samt straujað allar litlu...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok