Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Ávísanakerfi og frjálst val á skólum

í Deiglan fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Skólar sem væru mjög lélegir og ná ekki að bæta sig myndu ekki hætta heldur myndu þeir rúlla áfram með hálftóman skóla. Það er nefnilega ákveðið hlutfall foreldra sem nennir ekki að standa í að keyra börnin sín í aðra skóla eða lætur sig bara engu varða hvort skólinn þeirra er lélegur eða ekki. Með því að skólinn missir nemendur, þá minnkar kostnaðurinn ekki í sama hlutfalli. Þú þarft að missa heilan bekk áður en það er hægt að fækka um einn kennara. 5 krakkar sem hverfa úr hverjum bekk hafa...

Re: ehm.. köttur í poka?

í Kettir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Það er tvennt ólíkt þegar börn eru að hnoðast með dýr í óvitaskap og þegar fullorðnir eða jafnvel börn eru að meiða dýr viljandi. Sum dýr eru mjög þolinmóð þegar börn eru að hnoðast með þau. Ein lítil frænka mín gekk um húsið með pelann í annarri hendinni og köttinn í hinni. Hélt honum svona á maganum, eflaust ekki sérlega þægilegt fyrir köttinn. Önnur klæddi sinn kött í dúkkuföt og setti í dúkkuvagn. Hins vegar hefðu þeir alveg getað varið sig ef þeir hefðu ekki viljað þetta. Kettir eru...

Re: Hundar í blokkum

í Hundar fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Hún má náttúrulega rífast eins mikið og hún vill en samkvæmt nýju lögunum þá ræður hún engu um þetta. Samkvæmt gömlu lögunum hefði þurft leyfi frá henni vegna þess að þá var ekki gerður greinarmunur á blokkum annars vegar og rað- og parhúsum hins vegar.

Re: Lesið þetta!!!

í Deiglan fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Þú ættir að sitja um hjólið og tékka á hver er að skemma það og lemja hann.

Re: Geymslan tekin í gegn

í Börnin okkar fyrir 23 árum
Þú getur prófað mæðrastyrksnefnd í þínu sveitarfélagi. Þær taka við fötum og getur vel verið að þær vilji fá eitthvað svona dót líka. Þú getur líka prófað rauða krossinn. Svo er líka gefins dálkur í DV og líka á kassi.is en þá máttu búast við smá ónæði meðan það er að fara út.

Re: Skotið á kött !

í Kettir fyrir 23 árum
Ég sagði aldrei að kettir væru skaðlausir, þeir geta vissulega bitið og klórað en þeir eru alls ekki jafn hættulegir og hundar. Hundar hafa oft ráðist á fólk þó það sé ekkert að skipta sér af þeim. Kettir láta fólk yfirleitt vera nema þeir séu króaðir af. Ef þú tekur ókunnugan kött upp, er þá eitthvað skrítið að hann verji sig? Og þó svo fólk geti fengið sýkingar vegna þess að köttur klóraði það, þá er það ekki kettinum að kenna. Þú getur það fengið sýkingar vegna hvaða sárs sem er. T.d....

Re: Skotið á kött !

í Kettir fyrir 23 árum
Já, ljón eru hættuleg en heimiliskettir eru almennt ekki jafn stórir og ljón og hafa því ekki beint hæfilega til að éta fólk eða börn með húð og hári. Kettir láta fólk líka yfirleitt í friði nema þeir séu króaðir af nema kannski þeir séu eitthvað geðveikir. Hins vegar er mun algengara að hundar ráðist á fólk. Ég þekki alla vega mun fleira fólk sem hefur verið bitið af hundum en köttum. Svo gerir sæmilega stór hundur líka miklu meiri skaða þegar hann bítur. Gæti þess vegna tekið hálft...

Re: Ósáttur við einkunnagjöf

í Skóli fyrir 23 árum
Það á náttúrulega að vera á hreinu hvað annareinkunn gildir mikið á móti lokaeinkunn en alla vega finnst mér ekki eðlilegt að þú fáir fall ef lokaeinkunn er 5. Ég myndi panta tíma hjá námsráðgjafa eða kennslustjóra og kvarta.

Re: Hundar í blokkum

í Hundar fyrir 23 árum
Eins og það sé eitthvað betra að skemma fyrir einhverjum öðrum? Það hefur bara verið samþykkt í þessari blokk að leyfa ketti. Það mætti alveg prófa að hafa húsfund og reyna að fá hunda leyfða líka en fer bara eftir fólkinu í blokkinni hvort það vill það eða ekki.

Re: Er kötturinn minn geðveikur eða er þetta normalt?

í Kettir fyrir 23 árum
Ég held þú verðir að reyna að skamma hann til að hann hætti þessu einhvern tímann og hefðir líklega þurft að byrja strax. Hins vegar getur vel verið að hann sé eitthvað geðveikur og það muni ekki þýða neitt en mér finnst alla vega að þú ættir að prófa.

Re: Sjeffer hundar.

í Hundar fyrir 23 árum
<a href="http://www.google.com/search?q=german+shepherd+breed+info">http://www.google.com/search?q=german+shepherd+breed+info</a

Re: greinar?

í Hugi fyrir 23 árum
Það alla vega var hægt að nota html í greinum til að gera linka en held ég ekkert annað. Hins vegar virkar ekki að gera linka í greinasvörum.

Re: Hver er agent Smith í Matrix

í Hugi fyrir 23 árum
Auk þess sem hann lék Dragdrottningu í Priscilla Queen of the Desert

Re: Hundar í blokkum

í Hundar fyrir 23 árum
Þeir ættu náttúrulega ekki að vera lausir í blokkum en ég er nokkuð viss um að þær blokkir sem leyfa dýr setja reglur um dýrahald og ef eigandinn brýtur reglurnar verður hann að losa sig við dýrin eða flytja. Ég er með kött í blokk og hún fer aldrei fram á gang eða niður í þvottahús. Ég bý í Kanada og hér eru margar blokkir sem leyfa ketti og meira að segja sumar sem leyfa litla hunda eða jafnvel alla hunda.

Re: Hernám Íslands

í Sagnfræði fyrir 23 árum
Nei, ég hafði nú ekki hugmynd um tilvist þessara eyja. Leifar af frönskum yfirráðum þessa svæðis býst ég við. Bretar hljóta bara að hafa gleymt þeim þegar þeir hirtu þetta allt af þeim :)

Re: Hundar í blokkum

í Hundar fyrir 23 árum
Það þarf að vera sérinngangur og þá þarf ekki leyfi frá neinum. Ef það er sameiginlegur inngangur þannig að það er sameiginlegur gangur og/eða stigi innanhúss, þá þarf leyfi allra sem nota hann.

Re: Rugl og Þvæla?

í Deiglan fyrir 23 árum
Það var enginn að tala um einstæðar mæður í þessu sambandi en þó svo væri, þá eru líka til einstæðir feður, þurfa þeir þá ekki sveigjanleika í starfi? Ætti þá ekki að berjast fyrir sveigjanleika í starfi fyrir einstæða foreldra almennt? Og af hverju þurfa feður ekki sveigjanleika í starfi svo þeir geti sinnt börnunum líka? Á þeim vinnustöðum sem ég hef starfað, þá er það einmitt það helsta sem stuðlar að misrétti í launum það að konur virðast taka á sig ábyrgðina á börnunum. Það eru konur...

Re: Hernám Íslands

í Sagnfræði fyrir 23 árum
Ég bý í Kanada og þetta með frönskuna var ekki beint komið frá Quebec. Þeim hefur bara alltaf fundist vera saumað að sér vegna þess að þeir eru minnihlutahópur og hafa verið að gera sig líklega til að leita eftir sjálfstæði frá 1960. Jafnvel með hryðjuverkastarfssemi á tímabili. Stjórnin hefur verið að reyna að biðla til þeirra æ síðan, fyrst með því að gera bæði málin að opinberum málum og síðan með því að veita fylkjunum aukin réttindi í ýmsum málum. Nú er svo komið að flest er á báðum...

Re: Rugl og Þvæla?

í Deiglan fyrir 23 árum
Ég held alla vega að þær séu mun fleiri en “ein og ein”. Ég var að vinna með konu sem var framarlega í því að stofna “kvennadeild” innan síns stéttarfélags og ég var lengi að reyna að fá það fram hjá henni hverju þær væru eiginlega að berjast fyrir enda ekki eins og konur ættu eitthvað erfitt uppdráttar í þessari starfsgrein þó þær væru ekki mjög margar. Aðal tilgangurinn virtist vera að hvetja stelpur til að mennta sig í þessari starfsgrein og að reyna að fá vinnuveitendur til að gefa konum...

Re: Einkaréttur Land$ímans á notkun á frelsi

í Farsímar fyrir 23 árum
Skyldi Og Vodafone þá mega nota “frelsi” en ekki “Frelsi”?

Re: Hundar í blokkum

í Hundar fyrir 23 árum
Það getur barasta vel verið að það séu til blokkir þar sem má hafa hunda. Ef allir eigendur hafa samþykkt það, þá má það.

Re: Saumastofur

í Tíska & útlit fyrir 23 árum
Farðu á <a href="http://www.simaskra.is/control/index?pid=10409&query=saumastofa">http://www.simaskra.is/control/index?pid=10409&query=saumastofa</a> og hringdu svo á þessa staði og spurðu hvort þau taki svona verkefni og hvað það kostar. Þú getur líka farið á staðinn með flíkina til að sýna þeim svo það sé hægt að gefa þér betri upplýsingar. Þú getur líka farið í einhvern skóla sem er með fatahönnunardeild, t.d. IR og hengt upp auglýsingu og tékkað hvort þú færð einhverja manneskju í þetta....

Re: Hundar í blokkum

í Hundar fyrir 23 árum
Ef þið hafið sér inngang, þá kemur engum við hvort þið eruð með dýr eða ekki. Ef þið eruð með sameiginlegan inngang, þá verða allir eigendur íbúða sem nota þennan inngang að samþykkja á húsfundi að það megi hafa ketti eða hunda. Ég held ekki að það sé hægt að banna það eftirá þó einhver nýr flytji inn vegna þess að fólk sem flytur í húsið veit hvaða reglur er búið að samþykkja. Ef það vill ekki vera í blokk þar sem eru dýr, þá flytur það bara í blokk þar sem það er bannað.

Re: Rugl og Þvæla?

í Deiglan fyrir 23 árum
Hvernig veistu hvað þær eru margar? Þekkirðu alla feminista? Mér finnst þær alla vega alveg nógu mikið áberandi. Sorrý en ég hef bara aldrei heyrt um neinn eldri en 7 ára sem stundaði það að kyssa móður sína góða nótt. Alla vega tíðkast það ekki í minni fjölskyldu né hjá þeim sem ég þekki. Kyssirðu hana líka bless á morgnana áður en þú ferð út?

Re: Einkaréttur Land$ímans á notkun á frelsi

í Farsímar fyrir 23 árum
Og Síminn á líklega líka einkarétt á orðinu “síminn” og RÚV á líklega einkarétt á “sjónvarpið”. Persónulega finnst mér þetta frekja og ekki þessum fyrirtækjum til framdráttar. Mér finnst þetta bara álíka og ef Myllan ætlaði að fá einkarétt á orðinu “brauð”.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok