Mér finnst nú ansi gróft að bera á mann að vera annað hvort heimskur eða eiginhagsmunaseggur. Það er nefnilega til eitthvað sem heitir lágmarks kurteisi. Ég hef allavega ekki gengið svo langt að kalla aðra hérna illum nöfnum og ætla ekki að byrja á því núna. Það væri óskandi að aðrir væru eins þenkjandi… En allavega. Já, ég sé mikinn mun á því hvort að ég borgi í skatt fyrir lögreglu, dómsstóla eða landvarnir annars vegar eða fyrir heilsugæslu, skóla eða sinfóníuna hinsvegar, því að hið...