Í kring um 20. Október 2001 létu Bandaríkjamenn eftirfarandi dreifiriti rigna, ásamt matarpökkunum og sprengjunum, yfir Afganistan.

“Finnst þér gott að vera stjórnað af Talibönum? Ertu stoltur að lifa í óttanum? Ertu sáttur við að landið sem fjölskyldan þín hefur átt kynslóðum saman skuli vera notað til að þjálfa hryðjuverkamenn? Vilt þú stjórnina sem eru að draga Afganistan aftur til steinaldar og koma slæmu orði á Íslam? Ertu stoltur að lifa í landi sem hýsir hryðjuverkamenn? Ertu stoltur að búa í landi stjórnað af ofsatrúarmönnum? Talibanarnir hafa rænt landi þínu menningararfinn og eyðilagt þjóðarperlur. Þeir stjórna með harðri hendi, beita ofbeldi og kúgun byggt á ráðgjöf útlendinga. Þeir halda því fram að þeirra túlkun á Íslam sé sú eina rétta. Þeir sjá sjálfa sig sem trúarsérfræðinga, en þeir eru bara fáfróðir. Þeir myrða, kúga, fremja glæpi og halda ykkur í fátækt og segjast gera það í nafni guðs.” -Rogue State, William Blum

Á sömu nótum mætti fljúga yfir Bandaríkin með þetta dreifirit.

“Finnst þér gott að vera stjórnað af Repúblikana-Demókrata flokknum? Ertu stoltur að lifa í ótta og óöryggi? Ertu sáttur við að landið sem fjölskyldan þín hefur átt kyslóðum saman skuli verið tekið af bankanum? Ertu sáttur við stjórnina sem er að breyta Bandaríkjunum í lögregluveldi og koma slæmu orði á kristindóminn? Ertu stoltur að lifa í landi sem hýsir hundruðir hryðjuverkamanna í Míami? Ertu stoltur að lifa í landi stjórnað af öfgafullum kapitalistum og ofsatrúarmönnum? Kapitalistarnir hafa rænt landi þínu jafnrétti og réttlæti. Þeir hafa eyðilagt náttúruperlur, spillt fjölmiðlunum ykkar og kosningum. Þeir stjórna með hótunum um atvinnuleysi, húngri og heimilisleysi byggt á ráðgjöf guðar sem þeir kalla markaðurinn. Þeir halda því fram að þeirra leið til að byggja upp þjóðfélag og skipuleggja heiminn sé eina leiðin. Þeir sjá sjálfa sig sem siðgæðipostula, en þeir eru bara fáfróðir. Þeir varpa sprengjum, gera innrás, myrða þá sem á vegi þeirra standa, fremja stríðsglæpi, halda þér og stóran hluta af heiminum í fátækt, og segjast gera það í nafni guðs (Markaðarins).”

Haldið þið að Bandaríkjamenn hafi tekið WTC árásunum betur ef að hryðjuverkamennirnir hefðu dreift þessu riti ásamt samlokum með skinku og osti áður en þeir brunnuðu inn í turnanna?
Eina ástæðan fyrir matarpökkunum var að þetta var gott PR heimafyrir.

Ikeaboy69
P.S. Kannski að taka það fram að ég var mjög á móti Talibana stjórnini.
“What is hell, if you cannot dream of heaven?” -Sandman