Hann er greinilega að reyna að koma sér hærra í virðingaröðinni. Best er að fara með hann til hundaþjálfara sem fyrst, annars á þetta bara eftir að versna :S Fyrst sýna hundar tennur, síðan urra þeir og bíta síðan. Hundur þinn er á öðru stiginu þ.e. að urra. Því þarf ekki að spyrja hvað gerist ef hann verður ekki stoppaður. Mörgum hundum er lógað út af þessu, sem er í raun eigendunum að kenna því þeira haga sér ekki eins og leiðtogar. Leitaðu þér strax hjálpar hjá fagmanni!