Þar sem úrslita þátturinn var núna seinasta mánudag er ein pæling sem mig langar til að fá svar við. Mig minnir að Kathy hafi sagt að hún hafi haft 12 daga til að hugsa hvernig hún átti að kjósa í lokin, þ.e. hvort hún ætti að kjósa Rob. En mig langar að vita eitt, í þessa daga sem kvidómurinn er hvar eru þau og hvað eru þau að gera. Það sést vel á þeim að þau líta betur út, eru í hreinum fötum og eru hrein sjálf - konurnar eru málaðar og fleira.

En hvar eru þau? Eru þau á hóteli, flottri snekkju eða einhverstaðar annar staðar að láta dekra við sig. Einnig eruð þau saman eða aðskilin til að geta ekki talað saman um leikinn???
Mig langar mikið til að komast að því hvað gerist á bakvið tjöldin!!

Hefur verið sagt hvað gerist hjá kviðdómnum þegar hann er ekki á þingi því það er bara 3ja hvern dag og eitthvað verða þau að gera á meðan - ekki nema það sé bara slökkt á þeim…………..