Það ætti ekkert að fara í kekki þó hann sé bara með shaker, þetta er ekkert gert til þess að menn séu að mixa þetta í einhverjum svakalegum blandara. Ef drykkurinn fer í kekki þá er vandamálið annað hvort í duftinu eða að hann setur ekki nógu mikið vatn.
Ég þekki einn sem sleppir því alls ekki að borða nammi heldur sprautar hann sig bara þeim mun meira með insúlíni. Hann drekkur í kringum 2L af Pepsi MAX á dag og borðar amk eitt súkkulaðistykki. Eftir að hann fékk sykursýki hefur hann aðeins fitnað. :)
Hafðu hendur á hnakkanum, farðu niður í hnébeygjustöðu og hoppaðu svo upp, þetta er rosalega góð æfing, að mínu mati betri en hnébeygja ef þú ert að gera án lóða.
Svona til að vitna gefa þér eitthvað svar þá ætla ég að vitna í matarprógram boot camp: „Sú skoðun var lengi við lýði að hver sá sem væri of grannur ætti að borða rjóma, feitan mat og mikið af sykri. Allt er þetta mikill misskilningur. Þeir sem eru of grannir geta myndað fitu innan á æðum og fengið öll þau einkenni slæmrar næringar líkt og þeir sem berjast við aukakílóin. Til að þyngja sig er mikilvægast að borða nóg af hollum og næringarríkum mat samhliða því að styrkja líkamann.“ Svo er...
Nei, það er ekki jafn einangrandi, þegar þú stendur geturðu leyft líkamanum að hreyfast eðlilega í takt við lyftuna s.s. bakið hallast aðeins og þannig.
Nei, það er ekki líka talva. Orðið tölva er sett saman úr orðunum “tölur” og “völva” og saman mynda þau “tölva”. http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=1013
Þá er alveg eins gott að sitja bara. Best að leyfa svona “eðlilegar” hreyfingar, án þess þó að þú sért farinn að halla þér aftur og sveifla lóðunum upp.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..