kannski soldið lengi að svara en… þetta er spurning um traust, fuglinn verður að treysta þér fullkomlega. Fuglinn þarf að leyfa þér að klappa sér á bakinu og vera alveg rólegur á meðan. Næsta skref er að geta haldið utanum fuglinn, s.s. stoppa hendina á bakinu þegar þú ert að klappa fuglinum. Þegar fuglinn leyfir þér að halda utanum sig alveg rólegur, þá byrjarðu að halla hendinni smátt og smátt. Þegar fuglinn verður órólegur og líkar þetta ekki greinilega, þá skaltu hætta og reyna aftur...