Munið þið ekki eftir litlu myndunum “ást er….” og svo kom alltaf e-ð quote eftir á sem birtist alltaf í Mogganum (veit ekki hvort þetta er ennþá þar) Svo voru líka teiknaðar myndir af nöktu pari … Samt var/er þetta mjög rómantískt. :) Æi þið vitið hvað ég er að meina…
Allavegana ég er búin að vera að leita af þessu á netinu bæði á íslensku og ensku og ég finn eiginlega ekki neitt..
Vitiði hvar er hægt að nálgast þetta? Mig vantar alveg margar svona fyrir föstudaginn næsta ;) Þessvegna get ég ekki bara farið út í búð og keypt Moggann ef þetta er ennþá í honum :/