Jamm, Citroen C2 er einna næstur því að vera sportbíll af þessum bílum, en hann hefur að mér sýnist sér það helst til ágætis að vera, ef að ég má sletta, by far the biggest bang for the buck.
1. Hafskip. Hann tók félagið og Útvegsbankann af lífi í þingstól. Hann var í raun ljónheppinn að Björgólfur fór ekki í mál við hann. (Hafskip er eitt fárra fyrirtækja sem farið hafa í gjaldþrot sem _átti_ fyrir skuldunum!!!!) 2. Lög á kjarasamning kennara. 3. Skítlegt eðli. 4. Að hafa verið fjármálaráðherra. Ef að það er ekki nóg þá veit ég það ekki.
Ég hef nú ýmislegt á tilfinningunni varðandi kannanir sem birtast í fréttablaðinu, ég mér finnst að það vanti nokkuð upp á nákvæmni og hlutleysi þeirra.
Þetta er reyndar orðið taktískt hjá vinstrimönnum að fullyrða að Davíð sé brálaður, þegar að hann er í raun og veru ekkert að haga sér öðruvísi en ÓRG þegar ÓRG var ráðherra. Ég man ekki betur en að ÓRG hefði staðið í stöðugum átökum við hina og þessa hópa í samfélaginu.
Þetta eru reyndar fyrstu drögin: Frumvarpið sem afgreitt var frá Allsherjarnefnd er: “ 1. gr. Á eftir 3. mgr. 6. gr. útvarpslaga nr. 53/2000 kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Útgáfa útvarpsleyfis er háð eftirfarandi skilyrðum: a. Óheimilt er að veita leyfi til útvarps til fyrirtækis sem hefur að meginmarkmiði rekstur sem er óskyldur fjölmiðlarekstri. Einnig er óheimilt að veita útvarpsleyfi fyrirtæki sem að hluta eða öllu leyti er í eigu fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu í markaðsráðandi...
Ef að þú heldur að fjöldi frjálshyggjumanna sé bara 1% hvernig stendur þá á því að fjöldi hægrimanna (kjósendur D og F) er í kringum 40 til 45%? Frjálshyggjumaður er sá sem vill koma eftirfarandi í gegn: 1) Eins margar stofnanir og mögulegt verði fluttar yfir til einkaaðila. Ríkið á til að mynda ekki að standa í því að reka fjölmiðla. 2) Einkarekstur sé almennt besta rekstarformið til þess að tryggja bestu nýtingu á fjármunum. 3) Að skattar verði lækkaðir. 4) Kostnaðarvitund fólks verði...
Ég var ekki að segja hvað mér fyndist heldur hvað stendur í frumvarpinu. Mér finnst og þetta er það sem _mér_ finnst er að margir eru að ræða þetta mál án þess að hafa lesið frumvarpið, það er nú ekki nema 1 blaðsíða, með greinargerðinni er það tvær. Þú hefðir til dæmis átt að lesa eftirfarandi setningu áður en að þú skaust á mig: “Frumvarpið skilyrðir eign fyrirtækja í fjölmiðlafyrirtækjum á eftirfarandi hátt:” Prófaðu að svara efnislega næst.
Eru menn ekki frekar að reyna að flytja frá stöðum eins og Tálknafirði, en til þeirra? Kannski er þetta ný leið til þess að sporna gegn fólksflótta, ráða Árna Johnsen og bíða bara þangað til fullt af fólki hefur flutt til bæjarins í þeim tilgangi að fella meirihlutann ;)
Svona til þess að hafa smá pláss fyrir sannleikann í þessu fárviðri: “ Árni Johnsen ráðinn til Tálknafjarðarhrepps Sem kunnugt er vinnur Árni nú að sömu málum fyrir Vestubyggð og mun að þeim verkefnum loknum taka að sér umrætt starf fyrir Tálknafjarðarhrepp um eins mánaðar skeið í sumar. - í tímabundin verkefni á sviði ferða- og atvinnumála Hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps hefur ráðið Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismann, í tímabundin verkefni á sviði ferða- og atvinnumála. Sem kunnugt er...
Þú þarft að hafa bílinn í hámarkskaskó, en varla nokkur sála myndi fá sér nýjan bíl og ekki hafa hann í kaskó. Persónulega þá held ég að það sé ódýrara að staðgreiða hann. Jafnvel með afföllum og uppitökuverði þá nær kostnaðurinn ekki kostnaðinum við einkaleiguna.
Þessi fullyrðing um 86.000 manns kom úr “hinu ábyrga” DV. DV er náttúrulega búið að vera fullt af svo þvílíku bulli undanfarið að það er trúlega ekkert meira að marka þessa fullyrðingu en þá að sólin komi upp í vestri. Frumvarpið skilyrðir eign fyrirtækja í fjölmiðlafyrirtækjum á eftirfarandi hátt: Það er ekkert minnst á netmiðla og tímarit í frumvarpinu þannig að hvaða fyrirtæki sem er má eiga netmiðil og tímarit. Engin takmörk eru heldur sett á hversu stóran hlut fyrirtæki mega eiga í...
Það að kalla mig heimskann er nú eiginlega verra fyrir þig en mig. Ja, ég ætlaði að segja að ég myndi frekar kjósa hund, en það er eiginlega of niðurlægjandi fyrir hundinn. Það verður nú samt gaman að vita hvað “Greifinn af Monte-Christo” hefur í bígerð fyrir Ólaf. Afskipti Ólafs af Hafskipsmálinu eru vonandi ekki orðin öllum gleymd?
Ólafur Ragnar Grímsson hefur ekki í gegnum tíðina áunnið sér þá virðingu að hann sé hafinn yfir persónulegar árásir. Hann er bara dauðlegur maður af holdi og blóði, og fyrri aðgerðir hans og orð hafa verið þess eðlis að margir geta ekki og munu aldrei treysta honum. Ég myndi persónulega á stundinni frekar kjósa bílasala en Ólaf Ragnar. Hell, ég myndi frekar kjósa Árna Johnsen! Ég man ekki betur en að Vigdís hafi ákveðið að hætta eftir að hún varð fyrir linnulausum árásum frá vinstrimönnum og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..