Hver er reynsla fólks af svokallaðri einkaleigu??

Ég stend í þeim sporum í dag að kominn er tími til þess að fá sér nýjann bíl. Eitt af því sem ég hef verið að skoða er svokölluð einkaleiga.

Ég hef bæði lesið um hana á vefum bílaumboðana á netinu og eins talað líka við sölumenn. Að mínu mati er margt gott við einkaleiguna og mjög líklegt að ég láti verða að því að fá mér nýjan bíl á slíkri leigu. Það er þó sérstaklega eitt sem heldur aftur af mér og það er ákvæðið í leigusamningnum um að mér beri að borga það tjón og skemmdir sem verða á bílnum á samningstímanum.

Mig langar að forvitnast hér um hver reynsla fólks er af svona einkaleigu og þá sérstaklega hvernig staðið hefur verið að málum við lok samningstímans - hefur bílaumboðið verið mjög smámunasamt þegar kemur að því að meta tjón og skemmdir?